
Radarhýsi Landhelgisgæslunnar er komið á sinn stað á Stórhöfða. Þetta má sjá í nýju myndbandi Halldórs Halldórssonar frá því í dag þar sem flogið er yfir svæðið við Stórhöfðavita.
Á myndunum sést sívalningslaga hýsið með viðarklæðningu og ljósum toppi skammt frá vitanum. Jarðrask er í kringum hýsið eftir framkvæmdirnar.
Eyjafréttir greindu nýverið frá því að varðskipið Freyja hefði flutt búnaðinn til Vestmannaeyja 22. október. Halldór myndaði einnig flutninginn og mátti þar sjá búnaðinn um borð í skipinu og á leið landleiðina upp á Stórhöfða.
Eins og fram kom í frétt Eyjafrétta 14. september er hýsið ætlað undir ratsjár- og fjarskiptabúnað. Uppsetning þess er liður í að efla ratsjárvöktun á hafsvæðinu við Vestmannaeyjar. Staðsetningin er um 48 metra suðsuðvestur af Stórhöfðavita.
Myndband Halldórs frá Stórhöfða má sjá hér að neðan.