
Í lok september voru 99 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í Vestmannaeyjum, samanborið við 87 á sama tíma í fyrra. Fjölgunin nemur tólf manns, eða 13,8 prósentum. Vinnumálastofnun bendir þó á að atvinnuleysi í Eyjum sveiflist eftir árstíðum og aukning frá júlí til september sé ekki óeðlileg.
Þetta kemur fram í svari Ástu Ásgeirsdóttur, deildarstjóra greiningardeildar Vinnumálastofnunar, við fyrirspurn Eyjafrétta.
Ásta segir atvinnuleysi undanfarin ár hafa verið einna lægst í júlí. Bæði árið 2023 og 2025 hafi það verið hæst í október. Samkvæmt yfirliti stofnunarinnar voru 108 á skrá í októberlok 2023 og 109 í októberlok 2025.
Í ár fjölgaði á skránni úr 78 í júlílok í 88 í ágústlok og 99 í septemberlok.
Í flokknum fiskveiðar, fiskeldi og fiskvinnsla voru 28 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í septemberlok, samanborið við 19 ári fyrr. Ásta segir stofnunina þó ekki sjá breytingar í þeim flokki umfram eðlilegar árstíðabundnar sveiflur. Atvinnuleysi í þessum greinum hafi verið mun meira árið 2023 og fram á árið 2024.
Yfirlitið sýnir jafnframt að fólki á skrá úr þessum greinum fækkaði úr 35 í ágústlok í 28 í septemberlok í ár, þótt heildarfjöldi á atvinnuleysisskrá ykist á sama tíma.
Ásta staðfestir að Vinnumálastofnun birti ekki sérstaklega atvinnuleysishlutfall niður á sveitarfélög. Stofnunin birtir hins vegar fjölda atvinnulausra í lok hvers mánaðar á opnu mælaborði á vef sínum.