Herjólfur siglir til Þorlákshafnar í fyrri ferð dagsins þar sem ófært er í Landeyjahöfn vegna veðurs og sjólags. Brottför frá Vestmannaeyjum er klukkan 07:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 10:45.
Samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi falla ferðir klukkan 08:15, 09:30, 12:00, 13:15, 14:30 og 15:45 því niður.
Tilkynning um siglingar seinnipart dags verður gefin út fyrir klukkan 15:00 í dag.
Farþegar sem hyggjast nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að koma með eigin búnað.
Þá bendir Herjólfur á að á þessum árstíma sé alltaf hætta á að siglingar færist milli hafna. Því sé ekki æskilegt að skilja farartæki eftir í annarri hvorri höfninni.