
Það er ekki alltaf dans á rósum að fæðast inn í konungsfjölskyldu. Hallir, auðæfi og konunglegir titlar tryggja hvorki hamingju né áhyggjulaust líf. Það var meðal þess sem kom fram í fyrirlestri Guðnýjar Óskar Laxdal um norsku konungsfjölskylduna í Sagnheimum á sunnudaginn.
Fyrirlesturinn var hluti af Safnahelgi í Vestmannaeyjum. Guðný fléttaði saman fróðleik og húmor og fór yfir sorgir, veikindi og fjölskyldumál sem hafa sett mark sitt á líf norsku konungsfjölskyldunnar síðustu misseri.
Árið hefur verið norsku konungsfjölskyldunni erfitt. Haraldur Noregskonungur lést 28. ágúst, 89 ára að aldri. Skömmu síðar, 11. september, lést systir hans, Ástríður prinsessa, 94 ára að aldri.
Ástríður gegndi um áratugaskeið mikilvægu hlutverki innan konungsfjölskyldunnar. Eftir lát móður sinnar tók hún að sér skyldur fremstu konu konungshallarinnar og sinnti þeim um árabil.
Guðný sagði einnig frá hundinum Wilmu, sem var prinsessunni kær og lést fáeinum dögum á eftir henni. Þannig kvöddu konungsfjölskyldan bæði Harald og Ástríði og missti jafnframt fjórfættan heimilisvin á fáeinum vikum.
Mette-Marit, eiginkona Hákonar konungs, hefur einnig gengið í gegnum miklar raunir. Hún hefur um árabil glímt við alvarlegan lungnasjúkdóm og gekkst undir lungnaígræðslu í júní. Aðgerðin markaði tímamót í baráttu hennar við sjúkdóminn, þótt löng endurhæfing væri fram undan.
Guðný fjallaði einnig um erfið mál sem tengjast fjölskyldunni. Sonur Mette-Marit úr fyrra sambandi, Marius Borg Høiby, hefur verið í sviðsljósinu vegna alvarlegra sakamála. Þá hafa kynni hennar af bandaríska auðkýfingnum og dæmda kynferðisbrotamanninum Jeffrey Epstein vakið mikla athygli.
Marta Lovísa prinsessa, systir Hákonar konungs, hefur farið óhefðbundnar leiðir. Hún hefur lengi verið opin um áhuga sinn á andlegum málefnum og meðal annars fjallað um samskipti sín við engla.
Hjónaband hennar og Bandaríkjamannsins Dureks Verrett hefur einnig vakið athygli og umræðu. Guðný fór yfir sögu þeirra og gerði gestum grein fyrir því hvers vegna þau hafa verið svo áberandi í umfjöllun um norsku konungsfjölskylduna.
Þar skiptust á alvarlegir atburðir og óvenjulegar sögur sem gætu sumar hverjar átt heima í handriti að sjónvarpsþáttaröð.
Guðný hafði einnig lofað að svipta hulunni af óvæntri Íslandstengingu. Þar komu við sögu Margrét Guðmundsdóttir og tengsl hennar við Alexander Ferner, sem er af norsku konungsættinni en ber ekki prinsstitil.
Guðný Ósk hefur um árabil haldið úti blogginu og Instagram-reikningnum Royal Icelander, þar sem hún fjallar um konungsfjölskyldur heimsins. Áhuginn kviknaði í bernsku og hefur fylgt henni síðan. Hún skrifaði meðal annars BA-ritgerð sína við Háskóla Íslands um nútímavæðingu bresku konungsfjölskyldunnar.
Þekking hennar og einlægur áhugi á viðfangsefninu skiluðu sér vel í Sagnheimum, þar sem gestir fengu bæði að hlæja og fræðast um lífið að baki konunglegum titlum.
Guðný Ósk var ánægð með móttökurnar og sagðist hafa haft sérstaklega gaman af því að hitta áhugasama Eyjamenn. Hún kom einnig fram á Safnahelgi í fyrra og fjallaði þá um dönsku konungsfjölskylduna.
„Ég kom hingað í fyrra og sagði frá dönsku konungsfjölskyldunni. Það var ótrúlega gaman að koma aftur og hitta helling af skemmtilegu fólki sem hefur áhuga á kóngafólkinu. Kannski fylgist það ekki með því dags daglega en er forvitið um líf þess og það er gaman að spjalla við það,“ sagði Guðný að loknum fyrirlestrinum.
Hún lét siglinguna frá Þorlákshöfn ekki aftra sér frá því að koma til Eyja og naut Safnahelgarinnar ásamt föður sínum. Þau heimsóttu söfnin og fylgdust meðal annars með hrekkjavökugleðinni kvöldið áður.
„Það var gaman að fylgjast með, heimsækja söfnin og upplifa hrekkjavökuna í gærkvöldi. Það er alltaf gaman að koma til Vestmannaeyja og ekki skemmir fyrir að geta sinnt áhugamálinu í leiðinni.“
Guðný var meira en til í að koma aftur og fræða Eyjamenn um konungsfjölskyldur heimsins. Norska konungsfjölskyldan hefði að minnsta kosti séð til þess að nóg væri af frásagnarefni.
„Það er af nógu að taka hjá þeirri norsku. Það er mikið búið að ganga á, eins og þið heyrðuð,“ sagði Guðný Ósk að lokum. Og eftir fyrirlesturinn í Sagnheimum er óhætt að segja að það getur verið býsna gott að vera bara venjulegur Íslendingur, jafnvel þótt maður þurfi sjálfur að borga reikningana!
Hér að neðan má sjá myndband frá fyrirlestrinum í Sagnheimum og einnig myndasyrpu frá viðburðinum.