Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Herjólfur III og Herjólfur IV. Ingveldur Anna Sigurðardóttir spyr hvort eldri ferjan verði til taks í Eyjum í vetur ef sú nýrri bilar eða fer í slipp. Ljósmynd: Eyjafréttir/TMS

Ingveldur Anna Sigurðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram skriflega fyrirspurn til innviðaráðherra um hvort Herjólfur III verði varaskip fyrir Herjólf IV og hvort hann verði þá staðsettur í Vestmannaeyjum í vetur. Hún vill einnig fá að vita hvernig rekstur skipsins yrði fjármagnaður og hvernig tryggt yrði að það gæti hlaupið í skarðið.

Í fyrirspurninni spyr Ingveldur Anna hvort afkastageta Breiðafjarðarferjunnar Baldurs dugi til að leysa Herjólf IV af þegar hann bilar eða fer í slipp og á hvaða gögnum ráðherra byggi mat sitt. Hún óskar jafnframt eftir afstöðu ráðherra til þess að Herjólfur III taki við af Baldri sem varaskip þar til ný Vestmannaeyjaferja hefur verið smíðuð.

Spyr hvar skipið verði við bryggju

Vestmannaeyjabær óskaði 10. ágúst eftir formlegum viðræðum við Vegagerðina um stöðu Herjólfs III og samgöngur við Eyjar í vetur. Bærinn óskaði jafnframt eftir að stjórnvöld tækju formlega afstöðu að viðræðunum loknum, að því er fram kemur í greinargerð með fyrirspurninni.

Þar kemur einnig fram að Herjólfur III hafi fengið haffærisskírteini en að ákvörðun um framtíðarnýtingu skipsins liggi ekki enn fyrir. Yrði skipið rekið samhliða Herjólfi IV þyrfti sérstaka fjármögnun og viðauka við rekstrarsamning Vegagerðarinnar og Herjólfs ohf.

Ingveldur Anna spyr hvar Herjólfur III verði við bryggju í vetur og hvernig ráðherra hyggist tryggja öruggar samgöngur til og frá Vestmannaeyjum til lengri tíma. Fyrirspurninni var útbýtt á Alþingi 3. nóvember.

Tengt efni · Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin

Nýjustu fréttir

Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra enn ókominn
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til vörukynninga
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en verkefnið enn í þróun 
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.