Átján fyrirtæki í Vestmannaeyjum eru á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2026. Í fyrra voru þau sextán. Listinn var kynntur í Hörpu 28. október og alls komust tæplega 1.220 fyrirtæki á hann á landsvísu.
Þrjú fyrirtæki bætast við Eyjalistann frá í fyrra. Það eru Köfun og öryggi ehf. (Þvottahúsið Straumur), MK 4 ehf. og Vélaverkstæðið Þór ehf. Fyrirtækin í Eyjum starfa meðal annars við útgerð, fiskvinnslu, vélsmíði, verslun og veitingaþjónustu. Miðstöðin Vestmannaeyjum er á listanum tíunda árið í röð. Fjölskyldufyrirtækið hefur starfað í Eyjum frá árinu 1940.
Creditinfo byggir matið meðal annars á ársreikningum þriggja ára. Fyrirtækin þurftu að skila bæði rekstrarhagnaði og jákvæðri afkomu á hverju ári frá 2023 til 2025. Á sama tímabili þurftu árlegar rekstrartekjur að nema minnst 60 milljónum króna og eiginfjárhlutfall að vera að minnsta kosti 20 prósent.
Framúrskarandi fyrirtæki í Vestmannaeyjum 2026