Styrktarsjóður Landakirkju veitir aðstoð fyrir jólin
Tekið verður við umsóknum síðustu vikuna í nóvember
Styrktarsjóður Landakirkju tekur við umsóknum um aðstoð fyrir jólin síðustu vikuna í nóvember. Eyjafréttir/TMS

Styrktarsjóður Landakirkju veitir fólki með fasta búsetu í Vestmannaeyjum aðstoð fyrir jólin. Í tilkynningu frá sjóðnum kemur fram að tekið verði við umsóknum síðustu vikuna í nóvember. Prestar Landakirkju, Guðmundur Örn Jónsson og Viðar Stefánsson, taka á móti umsækjendum á skrifstofum sínum í lok mánaðarins.

Prestarnir þakka þeim fjölmörgu fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa stutt sjóðinn í gegnum árin. Framlög þeirra gera sjóðnum kleift að aðstoða fólk sem á erfitt með að ná endum saman fyrir jólin.

Hægt að leggja sjóðnum lið

Þau sem vilja styrkja sjóðinn geta lagt inn á eftirfarandi reikning.

Reikningsnúmer 0133-15-759
Kennitala 630321-0340

Nýjustu fréttir

Styrktarsjóður Landakirkju veitir aðstoð fyrir jólin
Fjölgun brota endurspegli aukið ofbeldi
Eyjakonur mæta Stjörnunni í bikarslag í kvöld
Heimir og Írar fara í umspil í Þjóðadeildinni
Átján framúrskarandi fyrirtæki í Eyjum
Bærinn semur við kaupmenn um jólagjafakort
Fjarvarmi í Eyjum hækkaði um 4,81% í nóvember
Herjólfur miðar við 2,5% hækkun um áramót
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.