Þrjár jólamyndir eftir nemendur í 1. bekk í Hamarsskóla prýða jólagjafakort Vestmannaeyjabæjar til starfsmanna í ár. Allar myndir nemendanna verða sýndar í Safnahúsinu frá föstudeginum 27. nóvember.
Nemendurnir heimsóttu ráðhúsið á þriðjudag þar sem Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri tók á móti þeim. Hún sagði þeim frá starfsemi bæjarins og hlutverki bæjarstjórnar. Börnin fengu einnig tækifæri til að spyrja hana spurninga.
Fram kemur á vef Vestmannaeyjabæjar að sú hefð hafi skapast á undanförnum árum að nemendur í 1. bekk teikni myndir fyrir jólagjafakort bæjarins. Verkefnið er unnið í samstarfi við Hamarsskóla og í ár voru myndir eftir Míu Mekkin Valgeirsdóttur, Röskvu Hjaltalín í Dali og Storm Héðin Tindsson dregnar út til að prýða kortin.
Sýningin opnar föstudaginn 27. nóvember og verður Safnahúsið opið til kl. 18 þann dag. Sama dag verða ljósin tendruð á jólatrénu á Stakkagerðistúni kl. 17. Dagskrá á vef Vestmannaeyjabæjar
Venjulegur opnunartími Safnahússins er kl. 10–17 virka daga og kl. 12–15 á laugardögum.