Rúmlega 18.500 farþegar ferðuðust með Herjólfi í október, 24,2% færri en í sama mánuði í fyrra. Bílum um borð fækkaði einnig á milli ára en fraktflutningar jukust. Þetta kemur fram í fundargerð stjórnar Herjólfs ohf. frá 17. nóvember.
Herjólfur flutti rúmlega 6.700 bíla í október, sem er 19,4% fækkun frá október í fyrra. Fraktflutningar jukust um 13,7% á sama tíma.
Bæði tekjur og gjöld Herjólfs voru umfram áætlun í október. Samkvæmt fundargerðinni juku tíðar siglingar til og frá Þorlákshöfn rekstrarkostnað verulega. Þar kemur einnig fram að olíukostnaður hafi aldrei verið hærri.