
Þann 29. október óskuðu Eyjafréttir eftir nöfnum og starfsheitum umsækjenda um starf slökkviliðsstjóra Vestmannaeyja. Umsóknarfrestur hafði runnið út daginn áður. Nú eru fjórar vikur liðnar frá beiðninni. Listinn hefur enn ekki borist og bærinn hefur ekki sagt hvenær beiðnin verður afgreidd.
Ég hef ítrekað beiðnina og spurt hvenær svars sé að vænta. Brynjar Ólafsson sviðsstjóri sagði upphaflega að beðið væri svara frá umsækjendum um birtingu nafna þeirra. Í síðara svari sagði hann málið enn í vinnslu og að listinn yrði sendur þegar hann lægi fyrir.
Ég leitaði einnig til Eyþórs Harðarsonar, formanns bæjarráðs. Hann sagðist taka ábendingunum alvarlega, hafa óskað eftir upplýsingum um stöðu málsins og ætla að fylgja því eftir að mér yrði svarað formlega. Enn bíða Eyjafréttir listans og upplýsinga um hvenær beiðnin verður afgreidd.
Upplýsingalög kveða á um að veita skuli upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda að loknum umsóknarfresti, með þeim takmörkunum sem lögin setja. Þau leggja jafnframt þá skyldu á bæinn að skýra tafir og segja hvenær ákvörðunar sé að vænta hafi beiðni verið óafgreidd í sjö daga frá móttöku. Upplýsingalög nr. 140/2012, 7. og 17. gr.
Hér er verið að ráða stjórnanda sem ber ábyrgð á rekstri og faglegri starfsemi slökkviliðs bæjarins. Áhugi almennings á því hverjir sækjast eftir þeirri stöðu ætti að vera fyrirsjáanlegur. Bærinn ætti að undirbúa upplýsingagjöfina um leið og starfið er auglýst og upplýsa umsækjendur um hana.
Margir bæjarbúar hafa spurt mig um málið. Ég get rakið samskiptin en hef enn ekki fengið upplýsingar um hvenær þessari bið lýkur. Slík staða skapar óvissu og gefur vangaveltum svigrúm. Bæjaryfirvöld geta dregið úr þeirri óvissu með skýrum upplýsingum.
Ég beini því eftirfarandi spurningum til ykkar, kjörinna fulltrúa bæjarbúa:
Ég óska eftir opinberu svari við þessum spurningum og að þið fylgið því eftir að beiðnin verði afgreidd án frekari tafa.
Kjörnir fulltrúar bera ábyrgð á því að gera kröfur um vinnubrögð stjórnsýslunnar og fylgja þeim eftir. Nú reynir á þá ábyrgð.
Tryggvi Már Sæmundsson
Ritstjóri Eyjafrétta