Eyjarnar lönduðu í Neskaupstað eftir veiðar í brælu
Systurskipin Vestmannaey VE og Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bergey VE landaði rúmlega 50 tonnum í Neskaupstað í gær og Vestmannaey VE landaði þar 30 tonnum í morgun. Þorskur var uppistaðan í afla beggja skipa. Skipstjórarnir segja frá veiðum og erfiðu veðri á vef Síldarvinnslunnar.

Þokkaleg veiði hjá Bergey

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, segir að veiðiferðin hafi tekið um tvo sólarhringa. Skipið hóf veiðar á Glettingi og hélt síðan á Tangaflak, þar sem veitt var í leiðindaveðri. Um þriðjungur aflans var ýsa.

„Við erum bara nokkuð sáttir við veiðina,“ segir Jón í samtali við vef Síldarvinnslunnar.

Erfið heimleið hjá Vestmannaey

Vestmannaey VE veiddi á Herðablaðinu, Gerpisflaki og Tangaflaki. Egill Guðni Guðnason skipstjóri segir að veðrið hafi verið slæmt allan túrinn og versnað á leið í land.

„Veðrið var svo sannarlega ekki gott og á landleiðinni var það arfavitlaust,“ segir Egill Guðni.

Hann segir að Vestmannaey hafi verið í um 45 mílna fjarlægð frá slysstaðnum þegar Jökull ÞH fórst í gær. „Slysið var hörmulegt og auðvitað hefur það mikil áhrif á alla sjómenn,“ segir hann.

Birtingur landaði 90 tonnum á Skagaströnd

Birtingur NK, sem einnig er í Síldarvinnslusamstæðunni, landaði 90 tonnum á Skagaströnd í gær, að mestu þorski. Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri segir að lítið hafi fengist fyrstu þrjá sólarhringana, en veiðin hafi glæðst á Strandagrunni síðustu tvo sólarhringa ferðarinnar.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar lönduðu í Neskaupstað eftir veiðar í brælu
Skráning í The Puffin Run 2027 opnar í dag
Kjörnir fulltrúar þurfa að axla ábyrgð
Arnór öflugur í tapi Karlskrona
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar – varað við óhagstæðri spá
Kiwanis styrkir forvarnastarf samfélagslögreglunnar í Eyjum
Farþegum Herjólfs fækkaði um 24% í október
Fyrstubekkingar myndskreyta jólagjafakort bæjarins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.