Ljósin tendruð á jólatrénu á Stakkagerðistúni
Ljósin á jólatrénu á Stakkagerðistúni verða tendruð í dag. Mynd: Eyjafréttir/Óskar Pétur

Ljósin á jólatrénu á Stakkagerðistúni verða tendruð í dag, föstudaginn 27. nóvember klukkan 17. Lúðrasveit Vestmannaeyja og Litlu lærisveinarnir koma fram og jólasveinarnir líta við, að því er fram kemur á vef Vestmannaeyjabæjar.

Lúðrasveit Vestmannaeyja flytur nokkur lög og Litlu lærisveinarnir syngja undir stjórn Kitty Kovács. Eyþór Harðarson, varaforseti bæjarstjórnar, og Guðmundur Örn prestur segja nokkur orð. Að því loknu kallar Eyþór Lenu Agnieszka til sín til að tendra ljósin á trénu.

Jólasveinar, Grýla og Leiðindaskjóða

Þegar ljósin hafa verið tendruð stíga jólasveinarnir á svið, syngja og sprella með krökkunum. Grýla og Leiðindaskjóða úr leikritinu Grýla gerir uppreisn taka síðan við og afhenda börnunum nammi í öðrum skúrnum á svæðinu. Að lokum gefst börnunum kostur á að spjalla við jólasveinana og fá mynd með þeim.

Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu selur kaffi, heitt súkkulaði og smákökur á staðnum.

Jólamyndir til sýnis á bókasafninu

Á bókasafninu verða til sýnis jólamyndir sem nemendur í 1. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja teiknuðu á gjafakort bæjarins. Sýningin er opin til klukkan 18 á föstudag. Verslanir í bænum verða einnig opnar til klukkan 18 í tilefni af svörtum föstudegi.

Nýjustu fréttir

Ljósin tendruð á jólatrénu á Stakkagerðistúni
Morgunferð Herjólfs á föstudag fellur niður
Nýtt útisvið rís á Vigtartorgi
Samúðarkveðjur úr Eyjum vegna sjóslyssins
Ennisrakaðir halda útgáfutónleika í Alþýðuhúsinu
Siglingar Herjólfs falla niður síðdegis
Eyjarnar lönduðu í Neskaupstað eftir veiðar í brælu
Skráning í The Puffin Run 2027 opnar í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.