25 fjölmiðlar fá rekstrarstuðning
Fjölmiðlanefnd annaðist umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð.

Eyjasýn ehf., útgáfufélag Eyjafrétta, fær rúmar 5,4 milljónir króna og Leturstofan Vestmannaeyjum ehf., sem heldur úti Tígli, fær tæpar 8,4 milljónir.

Alls fá 25 fjölmiðlaveitur 545,6 milljónir króna í almennan rekstrarstuðning árið 2026. Úthlutunarnefnd hefur lokið störfum og birt fjárhæðirnar á vef Fjölmiðlanefndar.

Eyjasýn ehf. fær 5.405.205 krónur og Leturstofan Vestmannaeyjum ehf. fær 8.376.842 krónur. Samtals nema styrkir félaganna tæpum 13,8 milljónum króna.

Sótt um rúman milljarð

Alls bárust 27 umsóknir innan umsóknarfrests og var sótt um samtals rúman milljarð króna. Einni umsókn var vísað frá þar sem hún barst eftir að umsóknarfrestur rann út. Tveimur umsóknum var synjað þar sem þær uppfylltu ekki öll skilyrði fyrir stuðningi.

Til úthlutunar voru 554 milljónir króna. Að frádregnum kostnaði við umsýslu, sérfræðiaðstoð og störf úthlutunarnefndar, sem nam tæpum 8,5 milljónum króna, voru 545,6 milljónir til ráðstöfunar.

Samkvæmt lögum getur rekstrarstuðningur að hámarki numið 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði hvers umsækjanda. Stuðningur til einstakrar fjölmiðlaveitu getur þó ekki orðið hærri en 22% af fjárveitingunni. Staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins fá 20% álag á styrkfjárhæð sína.

Úthlutunarnefnd skipuðu Anna Mjöll Karlsdóttir, formaður, Gunnar Þór Tómasson og Jón Gunnar Ólafsson. Fjölmiðlanefnd annaðist umsýslu umsókna og veitti nefndinni sérfræðiaðstoð.

Samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar hljóta eftirfarandi 25 fjölmiðlaveitur almennan rekstrarstuðning árið 2026:

Árvakur hf. 109.808.750 kr.
Birtíngur útgáfufélag ehf.      3.713.828 kr.
Brotkast ehf.      7.841.679 kr.
Bændasamtök Íslands    23.278.247 kr.
Eiðfaxi TV ehf.      6.320.543 kr.
Eigin herra ehf.      9.488.726 kr.
Elísa Guðrún ehf.       3.351.682 kr.
Eyjasýn ehf.      5.405.205 kr.
Fjölmiðlatorgið ehf.    43.459.582 kr.
Fótbolti ehf.     13.674.189 kr.
Hönnunarhúsið ehf.       1.693.482 kr.
Leturstofan Vestmannaeyjum ehf.      8.376.842 kr.
Myllusetur ehf.   42.609.690 kr.
Nýprent ehf.       5.371.267 kr.
Prentmet Oddi ehf.      6.661.790 kr.
Sameinaða útgáfufélagið ehf.    63.729.714 kr.
Samstöðin ehf.     13.718.581 kr.
Skessuhorn ehf.     15.776.176 kr.
Skrautás ehf.       2.171.970 kr.
Steinprent ehf.      4.658.875 kr.
Sýn hf. 109.808.750 kr.
The Reykjavík Grapevine ehf.    15.326.279 kr.
Útgáfufélag Austurlands ehf.     8.238.488 kr.
Útgáfufélagið ehf.      8.759.351 kr.
Víkurfréttir ehf.   12.309.363 kr.

Þessu tengt:

Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur úthlutað samtals 15 milljónum króna til níu útgefenda einkarekinna, staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins. Hver útgefandi fær um 1,67 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins. Þar segir að markmið styrkjanna sé að efla staðbundna fjölmiðla á landsbyggðinni og styðja við aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál, lýðræðisþátttöku […]

Nýjustu fréttir

25 fjölmiðlar fá rekstrarstuðning
Fresta tendrun jólatrésins á Stakkagerðistúni vegna veðurs
Tveir sýna áhuga á að gera Blátind VE upp
Ljósin tendruð á jólatrénu á Stakkagerðistúni
Morgunferð Herjólfs á föstudag fellur niður
Nýtt útisvið rís á Vigtartorgi
Samúðarkveðjur úr Eyjum vegna sjóslyssins
Ennisrakaðir halda útgáfutónleika í Alþýðuhúsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.