Ný íslensk síða um sjávarútveg
skjáskot af styrid.is

Stýrið er nýtt veflægt sjókort sem áætlað er að fari formlega í loftið í lok ágúst eða við upphaf nýs fiskveiðiárs. Það stendur til að einblína á sjávarútveg og birta upplýsingar um staðsetningu fiskiskipa af öllum stærðum og gerðum. Hugmyndin varð til í byrjun febrúar á þessu ári og hefur verið hliðarverkefni síðastliðna mánuði. Síðustu helgi fór fyrsta útgáfa af síðunni í loftið í von um að fá inn notendur sem eru tilbúnir til að prófa. „Það er viðkvæmt að fá fólk inn á síðuna á sama tíma og maður veit að hún er ekki 100% tilbúin en öll endurgjöf á þessum tímapunkti skiptir miklu máli upp á þróunina og framhaldið. Það kom skemmtilega á óvart að það voru 7.000 heimsóknir á síðuna síðastliðna viku. Endurgjöfin hefur verið jákvæð og margir ánægðir með framtakið en upplýsingar um mörg þeirra skip sem Stýrið birtir er ekki hægt að nálgast á fríum aðgangi hjá öðrum sambærilegum síðum. Ef vel tekst til þá verður hægt að setja púður í að sækja erlend skip en í dag er áherslan á fiskiskip í íslenskri landhelgi,“ sagði Ingvi Þór Georgsson annar aðstandenda síðunnar en hann ásamt Friðrik Valdimarssyni standa að síðunni. „Við unnum báðir hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og kynntumst við að gera rannsóknarverkefnið Aukin verðmæti gagna. Við erum báðir í öðrum vinnum í dag. Fyrst um sinn verður vefsíðan rekin á auglýsingum og aðgangi án auglýsinga.“

Verkefnið byggir á upplýsingum úr gervihnöttum. „Það er spennandi og skemmtilegt að sjá leiðir til að hagnýta þau til að fylgjast betur með umferð á sjó og vinna nýja lausn í samvinnu við sjómenn og útgerðir. Áhuginn á því að skoða svona síður er mikill erlendis þó það séu ekki tölur um það hér á landi. Tækifærið felst í að búa til notendavæna lausn sem verður vonandi hluti af morgunrútínunni þar sem sjómenn og áhugamenn í landi fá sér morgunkaffið og kíkja hvar skipin sem búa til verðmætin í landinu eru stödd. Einnig sóttum við um styrk hjá Samgöngustofu til að kortleggja og fylgjast með slysaskráningu út á sjó. Ef það tekst til þá verður hægt að birta myndrænt kort af því hvar og hvenær slysin eru að gerast sem gæti aukið forvarnir á sjó og gert skýrslum um sjóslys aðeins hærra undir höfði. Við vonum að vefsíðan veki lukku meðal sjómanna og útgerða og verði sem flestum að gagni,“ sagði Ingvi Þór að lokum.

www.styrid.is

Nýjustu fréttir

„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Besta rekstrarafkoma í 15 ár
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.