Vísir hf. í Grindavík hefur tekið Bylgju VE á leigu og lagt Kristínu GK. Að sögn Péturs Hafsteins Pálssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, er ekki útilokað að farið verði út í nýsmíði. Með Bylgju VE gerir Vísir í fyrsta sinn út skip til togveiða. „Kristín er komin á tíma og fer í pottinn,“ segir Pétur. Kristín er 41 metra stálskip smíðað í Boiszenburg í Austur-Þýskalandi árið 1965. Hún var lengd árið 1998 og hefur þjónað Vísi dyggilega í um 20 ár. „Við gerðum leigusamning um Bylgju til eins árs sem gefur okkur ráðrúm til þess að skoða málin. Það er ekki ljóst hvað gert verður í framhaldinu en við útilokum ekki nýsmíði. Við höfum endurnýjað þrjá báta og ætlum fyrst að sjá hvort Bylgjan passi inn í útgerðarmynstur okkar sem fram til þessa hefur alfarið verið útgerð línubáta.“
Hluti áhafnar fylgir skipinu
Hluti áhafnar Bylgjunnar verður áfram í sínu plássi en stendur til að gera skipið áfram út á troll. Þetta verður í fyrsta sinn sem Vísir gerir út á troll og þess vegna ætla menn að nýta reynsluna sem áhöfn Bylgjunnar býr yfir. Pétur segir að heimsfaraldurinn hafi vissulega sett strik í rekstrarreikninginn eins og hjá öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum. Markaðirnir séu enn misjafnir eftir löndum og afurðaflokkum. „Okkur hefur gengið ágætlega að stíga þennan línudans. Við höfum aðlagað okkur aðstæðum en segja má að sjávarútvegsfyrirtæki séu yfirleitt snögg að laga sig að breyttum aðstæðum.“
Mikil uppbygging
Vísir tók á móti nýjum Páli Jónssyni í byrjun árs. Hann hefur undanfarna daga verið í slipp í Reykjavík þar sem m.a. var gert við leka í kæli. Pétur segir reynsluna af skipinu fram til þessa mjög góða og allt hafi gengið samkvæmt áætlun. Skipstjóri er Gísli V. Jónsson sem stóð vaktina í eldri Páli Jónssyni allt frá árinu 2001. Í sínum fyrsta alvörutúr í febrúar á þessu ári landaði hann rúmum 100 tonnum af þorski og ýsu. Mikil endurnýjun hefur staðið yfir á skipaflota Vísis undanfarin ár. 2016 var Fjölnir GK endurbyggður og sömu sögu er að segja af Sighvati GK sem var nær því að vera nýsmíði en endursmíði svo margt nýtt er í honum. Páll Jónsson GK var fyrsta nýsmíði Vísis og í samningnum við skipasmíðastöðina Alkor í Póllandi voru ákvæði um smíði á öðru samskonar skipi sem þá myndi leysa Kristínu GK af hólmi. Í Páli Jónssyni er vinnslubúnaður frá Skaganum 3X sem bætir aflameðhöndlun, svo sem blæðingu, kælingu, flokkun og frágang afla í lest. Ekki hefur síður verið endurnýjað í fiskvinnslu fyrirtækisins. 2015 voru settar upp tvær Flexicut vatnskurðarvélar með tilheyrandi búnaði.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.