Lítið að frétta af makrílnum

„Merki voru um breytta hegðun makríls í hafinu í fyrra en nú gerist eitthvað allt annars eðlis en við höfum upplifað áður,“ segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar, um þá staðreynd að makrílfloti landsmanna er kominn í Smuguna (alþjóðlegt/opið hafsvæði austan við Svalbarða) en finnur þar lítið. Þar á meðal eru Ísleifur VE, Kap VE og Huginn VE.

„Venjulega höfum við veitt af kappi við við Eyjar í júlímánuði og fram undir Þjóðhátíð, fært okkur þá vestur eða austur um í ágúst en endað síðan norður í Smugu í september.

Núna finnst hins vegar enginn makríll við Eyjar. Á laugardaginn var, 25. júlí, lauk vinnslu hjá okkur á því sem síðast barst á land úr íslensku lögsögunni og skipin héldu þá í Smuguna. Þar hefur lítil veiði verið en þó smáskot í gær sem vonandi veit á skárri tíð. Ekkert er samt gefið í þeim efnum.“

  •  Í Morgunblaðinu í dag (29. júlí) er greint frá því að „umtalsvert magn af makríl“ hafi nýlega fundist í mið- og norðurhluta Noregshafs, þar á meðal suðaustur af Jan Mayen, í fjölþjóðaleiðangri vísindamanna í Norðurhöfum.
  • Skip Hafrannsóknarstofnunar, Árni Friðriksson RE, tók þátt í leiðangrinum fyrir Íslands hönd. Von er á tilkynningu um fyrstu niðurstöður fljótlega.

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.