Eng­inn vildi setja upp fend­era

Eng­inn áhugi virðist vera hjá verk­tök­um að setja upp svo­kallaða fend­era í höfn­um. Í tvígang hafa slík útboð verið aug­lýst á vef Vega­gerðar­inn­ar en eng­in til­boð bár­ust í verk­in. Sagt er frá þessu í Morgunblaðinu í dag.

Fend­er­ar eru viðameiri og betri en það sem venju­lega er sett upp í höfn­um, þ.e.a.s. hjól­b­arðar eða gúmmíslöng­ur og eru til að verja bæði skip og bryggju, upp­lýs­ir G. Pét­ur Matth­ías­son upp­lýs­inga­full­trúi Vega­gerðar­inn­ar. Síðan er styrkt­ar­biti langs eft­ir hlið Herjólfs sem ein­mitt er hugsaður til að leggj­ast utan í fend­er­inn þannig að skipið sjálft sé ekk­ert að rek­ast í bryggj­una. Þess­ir fend­er­ar hafa einnig í för með sér að það er fljót­legra fyr­ir skip að leggja að og frá.

Í apríl í fyrra óskaði Vest­manna­eyja­höfn eft­ir til­boðum í upp­setn­ingu á sex fend­er­um á Bása­skers­bryggju, þar sem Herjólf­ur leggst að. Ekk­ert til­boð barst. Sama gerðist þegar Vega­gerðin opnaði ný­lega til­boð í upp­setn­ingu á sex stauraf­end­er­um í Land­eyja­höfn.

„Hugs­an­lega er það tíma­setn­ing­in sem verk­tak­ar eru að horfa á, við vilj­um að þetta sé unnið að vetri til en ekki yfir há­anna­tím­ann á sumr­in því þetta þýðir ein­hverj­ar frá­taf­ir,“ seg­ir G. Pét­ur. Gengið var í það verk að setja upp fend­er­ana í Vest­manna­eyj­um. Og nú er verið að skoða hvað verður gert í fram­hald­inu varðandi Land­eyja­höfn, því fend­er­arn­ir muni fara upp.

Nýjustu fréttir

Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.