Villa í jólakrossgátu Eyjafrétta

Glæsilegu jólablað Eyjafrétta kom út í dag og hefur verið dreift til áskrifenda. Meðal efnis í blaðinu er hin árlega Jólakrossgáta Eyjafrétta í umsjá Sigurgeirs Jónssonar. Hins vegar voru gerð mistök við uppsetningu á henni í blaðinu.
Þrjár vísbendingar vantaði í lóðrétta dálkinn:

  1. Sú sem er kramrauð er seld þar sem er einhvers konar sölutorg (8)
  2. Nokkur töf varð á því að lukkan sýndi sig en úttektina veitti bankinn að lokum (8)
  3. Ég verð ekkert stærri þótt ég reimi skóna mína sjálfur (5)

Þá vantaði tvo skyggða reiti í lausnarorðið sem á að telja 11 stafi. Á annar reitur í 32 lárétt að vera skyggður sem og fjórði reitur í 35 lárétt.

Hér að neðan má líka sjá krossgátuna í heild sinni og geta áhugasamir smellt á hana og prentað út.

Nýjustu fréttir

Þjóðhátíð meðal þeirra best heppnuðu á síðari árum
Laugardagurinn á Þjóðhátíð í máli og myndum
Sex gistu fangageymslur eftir annasama nótt
Ein með öllu og Innipúkinn fengu sviðsljósið
Dagskrá sunnudags á Þjóðhátíð
Ágúst Þór brekkusöngvari Þjóðhátíðarinnar
Alltaf stuð í Eyjum
ÍBV tapaði Þjóðhátíðarleiknum gegn Fram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.