Starfsgreinasamband Íslands mótmælir harðlega boðuðum uppsögnum á hjúkrunarheimilum í Fjarðabyggð og Vestmannaeyjabæ. Það er aumur fyrirsláttur hjá ríkinu að það sé nauðsynlegt vegna yfirfærslu rekstarins frá sveitarfélögum til ríkisins og hrein svik á því sem stéttarfélögum starfsmanna hefur verið gefið til kynna.
Það eru algerlega forkastanleg vinnubrögð hjá Heilbrigðisráðuneytinu að krefjast þess að allt að 150 starfsmönnum verði sagt upp, sem eru að langmestu leyti konur í láglaunastörfum, að því að virðist með það að markmiði að ráða þær aftur til starfa undir öðrum kjarasamningi og á lægri kjörum.
Á landinu er atvinnuleysi í sögulegu hámarki og koma þessar fyrirhuguðu uppsagnir í framhaldi af öðrum uppsögnum á Heilbrigðisstofnunum á svæðinu sem er grímulaus aðför að láglauna kvennastéttum.
Þessa ruddalega framkoma eru ótrúlegar kveðjur til þessa fólksins sem hefur unnið sín mikilvægu störf undir miklu álagi undanfarin misseri.
SGS krefst þess að hætt verði uppsagnirnar og málið leyst þannig starfsfólkið haldi vinnu sinni og kjörum.
Starfsgreinasamband Íslands
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.