Himingeimurinn, lestrar hvatning og fótbolta stemning hljóta hvatningarverðlaun

Hvatningarverðlaun í leik- og grunnskóla voru kynnt á fundi fræðsluráðs í vikunni. Markmið með hvatningarverðlaunum er að vekja athygli á því sem vel er gert í fræðslustarfi. Verðlaunin eru hugsuð sem hrós til þeirra sem sýnt hafa framúrskarandi vinnu og er einnig staðfesting á því að viðkomandi er fyrirmynd á því sviði sem viðurkenningin nær til. Alls barst 21 tilnefning til Hvatningarverðlauna fræðsluráðs. Fræðsluráð fór yfir þær tilnefningar og valdi þrjú verkefni sem hljóta verðlaunin í ár.

Verkefnin sem hljóta verðlaun í ár eru:

Himingeimurinn
Helga Jóhanna Harðardóttir, Sara Jóhannsdóttir, Arnheiður Pálsdóttir, Thelma Hrund Kristjánsdóttir og Lóa Hrund Sigurbjörnsdóttir bjuggu til mjög metnaðarfullt þemaverkefni þar sem nemendur 6. bekkjar unnu með plánetur, stjörnur og stjörnumerki, tunglið, geimferðir og geimverur. Við vinnu verkefnisins var m.a. komið inn á lestur, lesskilning, stærðfræði og upplýsingatækni, en verkefnunum var skilað rafrænt. Mikil ánægja var með verkefnið hjá nemendum og foreldrum.

Starf bókasafns Barnaskólans
Sæfinna Ásbjörnsdóttir er dugleg og áhugasöm um að aðstoða nemendur við að finna bækur við hæfi. Hún er með ákveðin þemu í hverjum mánuði sem ætlað er að kveikja áhuga nemenda á lestri. Einnig er hún með fésbókarsíðu þar sem hún setur inn upplýsingar, m.a. um nýjar bækur. Þetta er allt liður í því að auka lestraránægju nemenda. Nemendur og kennarar tala um aukið úrval bóka sem og mikinn áhuga hjá Sæfinnu fyrir starfinu.

Fótbolti með 3. bekk
Erla Gísladóttir, stuðningsfulltrúi í 3. bekk, tók það í sínar hendur að búa til góða og jákvæða stemningu á gervigrasvellinum við Hamarsskóla í frímínútum. Henni tókst að fá nánast alla í árganginum til að sameinast í fótbolta, þar sem hún skipti í lið og var sjálf dómari. Verkefnið stóð í 5 vikur og í lokin var haldið lokahóf og verðlaunaafhending. Mikil ánægja og gleði var meðal nemenda með þetta verkefni.

Verðlaunin verða afhent við athöfn í Einarsstofu þann 17. júní nk.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.