Gagnrýna seinagang í húsnæðismálum GRV

Staðan á undirbúningi nýbyggingar við Hamarsskóla var til umræðu á fundi fræðsluráðs í gær. Framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs fór yfir stöðu mála. Vinna við frumþarfagreiningu er á lokastigi og vinnan að færast yfir á hönnunarstig. Rætt hefur verið við arkitekt sem teiknaði viðbyggingu við skólann á sínum tíma um að koma að hönnun og teikningu að viðbyggingunni. Hann hefur áhuga á verkinu og mun svara endanlega á næstu vikum eftir að hafa kynnt sér gögnin. Stefnt er að bjóða framkvæmdir út í upphafi næsta árs ef ekkert óvænt kemur upp. Frekari tímalína mun liggja fyrir síðar.

Skortir alla pólitíska forystu og vilja til að ná árangri
Fulltrúar D-lista í nefndinni lögðu fram bókun: “Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins taka undir niðurstöðu fræðsluráðs en vilja koma á framfæri óánægju sinni hve mikið þetta mál hefur dregist og lítið hefur ágengt þessi tæp þrjú ár frá fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu þetta mál fram á fundi fræðsluráðs 18. Október 2018. Það er greinilegt að þetta mál skortir alla pólitíska forystu og vilja til að ná árangri. Það er hægt að fela sig á bak við það að hér hafi verið heimsfaraldur og því ekki tími til að ganga í svona verkefni, en það hefur ekki stoppað framgang verkefna sem fulltrúar meiri hluta í bæjarstjórn hafa lagt fram, líkt og kaup og breytingar á Íslandsbankahúsinu, breytingar og lagfæringar á gamla Ráðhúsinu ásamt skipulag og framtíðarsýn með 3ju hæð Fiskiðjunnar. Öll þessi mál hafa verið unnin á meðan hér ríkir heimsfaraldur. Það er því óskiljanlegt að stækkun Hamarsskóla sé látið sitja á hakanum, þegar auðveldlega hefði verið hægt að forgangsraða málinu öðruvísi. Fyrir undirrituðum lítur þetta þannig út að það var mikilvægara fyrir þá sem eru í meirihluta að gera upp gamla ráðhúsið en að bæta húsnæðiskost nemanda og kennara.”

Ferlið komið af stað
Því var svarað með eftirfarandi bókun E- og H-lista: “Meirihluti E- og H-lista fagnar því að verkefnið sé komið vel af stað, þó það hefði auðvitað verið óskastaða að ferlið væri komið lengra.
Meirihluti E- og H-lista tekur þó ekki undir þá ómaklegu gagnrýni minnihluta sem beinist að starfsmönnum bæjarins. Þess í stað þökkum við fyrir þá vinnu sem þegar er búið að leggja í þetta metnaðarfulla stórverkefni.
Þess má einnig geta að þó ferlið hafi farið hægt af stað á þessu kjörtímabili, þá er ferlið komið af stað. Meira hefur gerst í verkefninu en þau tólf ár sem fyrrum meirihluti var við stjórnvölinn. Það verður spennandi fyrir bæði okkur og bæjarbúa að fylgjast með áframhaldinu.”

Okkar hlutverk að vinna með stöðuna eins og hún er í dag
Því fylgdi bókun frá fulltrúm D-lista: “Undirrituð vilja árétta, að það er ekki hlutverk Fræðsluráðs né okkar sem sitjum fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins að svara fyrir ákvarðanir fyrri fulltrúa. Það er okkar hlutverk að vinna með stöðuna eins og hún er í dag og fyrir framtíðina. Því er erfitt að sjá hvaða tilgangi þessi bókun meirihlutans þjónar. Það hefur mikil vinna farið fram á þeim 12 árum sem Sjálfstæðisflokkurinn sat í meirihluta og varð margvísleg framþróun í skólamálum og aðbúnaði. Þar er fyrst og fremst að þakka öflugu starfsfólki sveitarfélagsins og menntastofnanna þess. Einnig er að þakka nýrri framtíðarsýn og stefnu yfirvalda. Nýr leikskóli var vígður, fjölbreyttara rekstrarform leikskóla tekið upp, sameining Hamars- og Barnaskóla í GRV, nýsköpun í samþættingu skóla og íþróttastarfs með tilkomu íþróttaakademíu GRV og ákvörðun um uppbyggingu skólalóða sem bæjarbúar geta verið stoltir af. Börnum á grunnskólaaldri hefur fækkað mikið á undanförnum árum og er því kominn tími á að samnýta húsnæði. Því er mjög mikilvægt að nýbyggingin við Hamarskóla rísi sem fyrst til að bæta aðbúnað nemanda og starfsfólks, bæta aðstöðu Tónlistarskóla Vestmannaeyja og frístundavers og ná fram rekstrarhagræðingu.”

 

Nýjustu fréttir

Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.