Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) óska eftir tilnefningum til samfélags- og hvatningarverðlauna á sviði menningarmála á Suðurlandi.
Um er að ræða samfélagslega viðurkenningu sem Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) mun veita formlega á ársþingi sínu í október 2021.
Tilnefningar skal senda á netfangið menningarverdlaun@sass.is eigi síðar en mánudaginn 18. október nk.
Markmiðið með verðlaununum er að vekja jákvæða athygli á menningartengdum verkefnum á Suðurlandi, en mikil gróska hefur verið á þeim vettvangi undafarin ár.
Verðlaunin má veita einstaklingi, fyrirtæki, stofnun, söfnum, hópi og/eða verkefni. Verðlaunin eru hugsuð sem hvatning á sviði menningar en menning er víða hornsteinn hvers samfélags og skiptir íbúa og gesti á Suðurlandi miklu máli.
Í tilnefningunni skal hafa eitthvað af eftirfarandi atriðum til hliðsjónar:
Veitt verður viðurkenning sem og peningaverðlaun sem nýta á til áframhaldandi menningarstarfs á Suðurlandi
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst