Í ljósi fjölgunar COVID-19 smita í samfélaginu breytast heimsóknarreglur á HSU frá og með 12. nóvember 2021.
Breytingarnar fela í sér takmörkun á komum gesta og eru heimsóknir til sjúklinga á HSU ekki heimilar nema með sérstöku leyfi forsvarsmanna viðkomandi deildar.
Heimsóknir á hjúkrunardeildir eru heimilaðar í samráði við starfsfólk deildar. Grímuskylda er í gildi hjá heimsóknargestum á meðan heimsókn varir. Grímuskylda er á HSU. Allir 6 ára og eldri bera maska í viðtali, rannsóknum og öðrum erindagjörðum inni á stofnanir HSU. ATH að buff er ekki tekið gilt.
PCR sýnataka verður á HSU á sunnudagsmorgun kl.10 fyrir utan sjúkrahúsið.
Þessi sýnataka er einungis fyrir þá sem eru með einkenni, eða eru að klára sóttkví.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.