Sjúkraflug undir fordæmalausu álagi

Staðan á HSU í Vestmannaeyjum var til umræðu á fundi bæjarráðs í gær. Davíð Egilsson, yfirlæknir heilsugæslunnar í Vestmannaeyjum, kom á fund bæjarráðs og fór yfir stöðu læknamönnunar á Heilsugæslunni í Vestmannaeyjum. Bæjarstjóri hefur, f.h. Vestmannaeyjabæjar, óskað eftir fundi með nýju heilbrigðisráðherra, til þess að ræða stöðu og starfsemi HSU í Vestmannaeyjum, stöðu sjúkraflugs og sjúkraþyrlu.

Niðurstöðu sinni þakkar bæjarráð Davíð Egilssyni fyrir upplýsandi og áhugaverða yfirferð um stöðuna og leggur fram sameiginlega bókun:

Líkt og kom fram í umfjöllun RÚV á dögunum hefur sjúkraflug á landinu öllu verið undir nær fordæmalausu álagi þrátt fyrir að ferðamönnum hafi snarfækkað vegna heimsfaraldurs. Afar takmarkað áætlunarflug til Vestmannaeyja eykur álag á sjúkraflug. Við flutning miðstöðvar sjúkraflugs til Akureyrar lengdist viðbragðstími til Vestmannaeyja og þrátt fyrir svarta skýrslu ríkisendurskoðunar frá 2013 hefur ástandið ekki lagast. Það er óásættanlegt.

Nauðsynlegt er að klára fjármögnun tilraunaverkefnis um sjúkraþyrlu á Suðurlandi til þess m.a. að bæta viðbragð við Vestmannaeyjar, þar sem lífsbjargandi þjónusta er takmörkuð.

Bæjarstjóri hefur óskað eftir fundi bæjarráðs með nýjum heilbrigðisráðherra til að ræða stöðuna.

Nýjustu fréttir

„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.