Matvælaráðherra bætir 1.500 tonnum af þorski við strandveiðipott

Ný reglugerð um strandveiðar hefur verið undirrituð af Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra. Alls eru 10.000 tonn af þorski í strand­veiðipott­in­um á þessu tíma­bili, þar af 1.500 tonn sem ráðherra bætti við. Hlutfall strandveiða af leyfilegum heildarafla þorsks nemur því 4,5% og hefur ekki hefur svo stórum hluta aflans áður verið úthlutað til strandveiða.

Þessi ákvörðun er ætlað að festa strand­veiðar enn bet­ur í sessi, en í dag fá margar fjöl­skyldur hluta sinna heimilistekna frá strand­veiðum. Sá afli sem er til ráðstöf­un­ar fyrir strandveiðar hverju sinni miðast við ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar og ákvörðun ráðherra um leyfi­leg­an heild­arafla.

Brátt hefst fjórtánda strandveiðisumarið frá því strandveiðum var komið á, en strandveiðar eru stundaðar frá maí til ág­úst. Grunnhugsunin að baki strand­veiðum er að stunda megi veiðar með strönd­inni á sjálf­bær­an og ábyrg­an hátt en jafnframt opna möguleika fyrir þau sem ekki hafa yfir aflamarki að ráða á að reyna fyr­ir sér í sjáv­ar­út­vegi.

„Ég hef fengið fjölda erinda frá strandveiðimönnum  þar sem ég hef verið hvött til að taka til skoðunar hvernig bæta megi kerfið þannig að verðmæta­sköp­un verði sem mest og jafn­ræði landsvæða sem best. Þau tilmæli tek ég alvarlega og þessi ákvörðun er liður í þeirri vinnu. Mik­il­vægt er að strand­veiðar verði áfram tryggðar í þágu byggða, sjálf­bærni og fæðuör­ygg­is“ sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.