Íslensk saltfiskveisla í Katalóníu samhliða sjávarútvegssýningunni í Barcelona

Rúmlega 100 veitingastaðir í Katalóníu-héraði á Spáni munu kynna íslenskan saltfisk undir slagorðinu Tellem el Bacallá (Katalónska: Smakkaðu saltfiskinn), og bjóða upp á saltfisk frá Íslandi á matseðli sínum næsta mánuð.

Kynningin, sem er samstarf milli markaðsverkefnisins Bacalao de Islandia, Estrella Damm bjórframleiðandans og Félags saltfiskútvatnara á Spáni, hefst í dag og stendur til 5. Júní. Þetta er í fimmta skipti sem þessir aðilar taka saman höndum um að kynna íslenskan saltfisk á Spáni, en kynningin í ár er þó sú veigamesta sem ráðist hefur verið í til þessa, en aldrei hafa fleiri veitingastaðir tekið þátt.

Kynningin fer fram samhliða upphafi stórrar alþjóðlega sjávarútvegs- og sjávarútvegstæknisýningar fer fram í Barcelona. Alls eru 27 íslensk fyrirtæki stödd á sýningunni að þessu sinni til þess að hitta kaupendur og mynda ný viðskiptatengsl. Alls eru um 26.000 manns sem sækja sýninguna, þarf af um 15.000 kaupendur.

Þetta er í fyrsta skipti í þrjú ár sem þessi sýning fer fram vegna heimsfaraldusins og í fyrsta skipti sem hún er haldin í Barcelona. Sama sýning hefur fram til þessa farið fram í Brussel og verið árviss viðburður á meðal margra fyrirtækja í sjávarútvegi og sjávarútvegstækni.

Með í för á sýningunni er Einar Björn Árnason, yfirmatreiðslumaður á veitingastaðnum Einsi Kaldi í Vestmannaeyjum sem töfrar fram fiskrétti fyrir gesti sýningarinnar en tekur einnig á móti nemendum úr hinum virta CETT matreiðsluskóla í Barcelona. Þá heimsótti Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra Íslands á Spáni sýningarsvæðið í dag og kynnti sér starfsemi íslensku fyrirtækjanna á svæðinu.

Íslandsstofa skipuleggur þátttöku íslensku fyrirtækjanna á sýningunni, ásamt því að reka markaðsverkefnið Bacalao de Islandia, sem starfrækt hefur verið frá því 2013.

Björgvin Björgvinsson, fagstjóri sjávarútvegs hjá Íslandsstofu: „Það er mikil stemming í hópi íslenskra sýnenda og augljóst að fólk gleðst yfir því að geta hitt fólk á ný í eigin persónu eftir langt hlé. Það er stöðug ös af fólki á íslensku sýningarsvæðin og mikill áhugi á þeim vörum sem íslendingar eru að kynna hérna.“

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.