Nú er öðrum keppnisdegi að ljúka á TM mótinu hjá stelpunum í 5. flokki. Í kvöld verður haldin kvöldvaka fyrir öll lið og urðu smávægilegar breytingar á henni, en Klara Elias mun koma fram í forföllum tónlistarkonunnar Bríetar.
Þetta hljóta að þykja góðar fréttir fyrir unnendur nýja Þjóðhátíðarlagsins; Eyjanótt sem Klara samdi og flytur. Vafalaust mun Klara taka lagið í kvöld fyrir ungar knattspyrnstjörnur Íslands.

Úrslit ÍBV liða í leikjum dagsins
ÍBV-1
Víkingur1-ÍBV1: 3-0
Stjarnan2-ÍBV1: 3-1
ÍBV1-RVK2: 3-0
ÍBV-2
ÍBV2-ÍR2: 0-1
HK4-ÍBV2: 5-2
ÍBV2-Selfoss3: 5-2
ÍBV-3
ÍBV3-Höttur2: 1-1
ÍBV3-Njarðvík2: 1-0
Breiðablik6-ÍBV3: 4-3
ÍBV-4
ÍBV4-ÞÓR Ak3: 2-1
Breiðablik7-ÍBV4: 4-1
ÍBV4-Þróttur Rvk4: 0-1




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.