Það var árið 2004 sem Kristín Jóhannsdóttir, þá menningar- og ferðamálafulltrúi Vestmannaeyja blés til fyrstu Safnanæturinnar í Vestmannaeyjum. Hugmynd sem hún tók með sér frá Þýskalandi og hefur verið árviss viðburður síðan. Fljótlega varð þetta að Safnahelgi, sannkölluð menningarveisla fyrstu helgina í nóvember sem nú er fram undan. Hefst hún á morgun, fimmtudag og stendur fram á sunnudag.
Allt hefst þetta á morgun með Ljósmyndadegi í Safnahúsi þar sem sýndar verðar myndir úr safni Gísla J. Johnsen. Málþing verður svo um Gísla í Ráðhúsinu á laugardaginn. Setning er í Stafkirkjunni kl. 17.00 á morgun og eftir það rekur hver viðburðurinn annan. Klukkan 18.00 verður sýningin, Sögur úr Eyjum opnuð í Safnahúsi. Um kvöldið er sönghópurinn Blítt og létt með tónleika í Eldheimum.
Og áfram heldur veislan á föstudaginn og enn og aftur er það Safnhús sem er miðpunkturinn. Þar mætir Sigurgeir Svanbergsson kl. 17.00 og lýsir í máli og myndum Eyjasundi sínu í júlí í sumar. Um kvöldið verður slegið í klárinn þegar KK mætir á Háloftið.
Dagskráin er mjög þétt á laugardaginn og hefst með bókakynningu í Safnahúsi kl. 12.00. Þær Arna Björgvinsdóttir og Yrsa Þöll Gylfadóttir lesa úr nýjum bókum sínum í seríunni Bekkurinn minn. Bókabeitan kynnir ýmsar barnabækur.
Gísli J. Johnsen í Ráðhúsinu
Klukkan 13.00 er yfirgripsmikið málþing um athafnamanninn Gísla J. Johnsen í Ráðhúsinu. Þátttakendur eru Arnar Sigurmundsson, Helgi Bernódusson, Ívar Atlason, Kári Bjarnason, Ingi Tómas Björnsson og Pétur Ármannsson. Í lok málþingsins verður gengið að Breiðabliki þar sem Pétur og húsráðendur munu fjalla stuttlega um sögu hússins og endurbætur.
Klukkan 14:00 mætir ÍBV Donbas frá Úkraínu í Evrópubikarkeppninni í handbolta karla. Klukkan 15:00 sýnir Leikfélag Vestmannaeyja. Ávaxtakörfuna sem fengið hefur mjög lofsamlega dóma.
Og aftur eru Eldheimar vettvangurinn, Þar sem Kristín sem kom þessu öllu af stað ræður nú ríkjum. Kl. 20:30 mæta þar rithöfundarnir Einar Kárason sem sendir í ár frá sér bókina, Opið haf og Yrsa Sigurðardóttir sem er á kunnulegum slóðum í bókinni Gættu þinna handa. Svo verður óvænt tónlistaratriði.
Það þarf enginn á láta sér leiðast á sunnudaginn. Fjörið byrjar klukkan 12.00 með Sögu og súpu í Safnahúsi þar sem viðfangsefnið er Gunnar Ólafsson á Tanganum og atvinnusaga Vestmannaeyja. Þátttakendur er Andrea Þormar, Helgi Bernódusson og Guðjón Friðriksson. Dagskráin er styrkt af Uppbyggingarsjóði.
Seinni leikur ÍBV Donbas frá Úkraínu er klukkan 14.00 og Ávaxtakarfan verður sýnd klukkan 15.00.
Opnunartími safna:
Eldheimar 13:30-16:30 alla daga. Solander sýningin á opnunartíma.
Sagnheimar 13-16 á laugardag. Frítt inn. Bingó fyrir börnin.
Bókasafn 11-14 á laugardag.
Sjóminjasafn Þórðar Rafns 13-16 lau og sun. Frítt inn.
Gestastofa Sea Life Trust 11-15 fös, lau og sun. Heimafólk fær 15% afslátt af árskortum fyrir 2023. Á bakvið tjöldin ferðir á 50% afslætti alla helgina. Ratleikur, föndurstöð og spil, lifandi tónlist með Alberti Tórshamar, myndlistasýning Gunnars Júl.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.