Sito kveður ÍBV
Mynd: Facebook/ÍBV knattspyrna

Spænski sókn­ar­maður­inn Sito leik­ur ekki með karlaliði ÍBV í knatt­spyrnu á kom­andi tíma­bili.

Hann gekk fyrst í raðir ÍBV tíma­bilið 2015 en skipti svo yfir til Fylk­is sum­arið eft­ir. Sito lék svo með Grinda­vík sum­arið 2018 en skipti svo aft­ur til ÍBV fyr­ir tíma­bilið 2020 og hafði leikið með Eyja­mönn­um und­an­far­in þrjú tíma­bil.

Alls á Sito 65 leiki að baki í efstu deild þar sem hann hef­ur skorað 14 mörk og einnig á hann að baki 39 leiki í næ­stefstu deild, þar sem hann hef­ur skorað 16 mörk.

„Við þökk­um Sito fyr­ir tím­ann hans hér í Eyj­um og ósk­um hon­um góðs geng­is í því sem hann tek­ur sér fyr­ir hend­ur,“ sagði í til­kynn­ingu frá knatt­spyrnu­deild ÍBV.

 

Nýjustu fréttir

Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Líkamsrækt við Hástein skrefi nær – tveir sátu hjá
Spegilmyndir í morgunblíðunni
Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.