Ég hef alltaf verið mikill síldarkarl
Mynd: mbl.is

Hið árlega síldarkvöld ÍBV verður haldið í kvöld kl. 18.30 á Háaloftinu í Höllinni. Boðið verður upp á ýmis konar salöt sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Einnig verður boðið upp á eðal rúgbrauð frá Eyjabakarí. Verð 2900 kr. og er hægt að panta fyrir hópa á knattspyrna@ibv.is.

Við höfðum samband við síldaráhugamanninn Daníel Geir Moritz og spurðum hann út í kvöldið og þennan mikla áhuga hans. “Ég hef alltaf verið mikill síldarkarl og er síldin vinsæl í föðurættinni minni. Frændi minn, Halli Kalla Jör, var brautryðjandi í mareneringu á síld hjá Síldarvinnslunni og svo tók föðurbróðir minn við og pabbi hefur líka haft puttana í þessu. Það eru alls konar salöt sem maður hefur étið um ævina og alltaf líkað vel.”

Hann sagði að gestir mættu eiga von á veglegri veislu. “Já, það er óhætt að segja að það verði sérstakt á boðstólnum í ár. Umræddasta salatið frá því 2019 mun snúa aftur en ég vil ekki uppljóstra hér hvað er í því.” Hvaðan kemur þessu síld? Í ár verður boðið upp á síld frá VSV og Ísfélaginu eins og áður en einnig verður síld frá Síldarvinnslunni í ár.

Daníel segir þessa samkomu alltaf hafa vakið mikla lukku. “Það er nú gaman að segja frá því að fyrst þegar þetta var haldið hjá okkur sagði einn við mig í lok kvölds að það væru mikil meðmæli með kvöldinu að hann hafi aldrei borðað síld, eða verið hrifinn af henni, en sé nú á heimleið pakksaddur! Ég hvet því alla sem vilja að koma og prófa.”

Nýjustu fréttir

„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.