Metfjöldi útkalla flugdeildar Landhelgisgæslunnar
Flugdeild Landhelgisgæslunnar sinnti 299 útköllum árið 2022 og hafa þau aldrei verið fleiri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá gæslunni. Af útköllunum 299 voru 156 þeirra vegna sjúkraflutninga og 115 vegna leitar eða björgunar. Um þriðjungur útkallanna voru farin á sjó sem er aukning frá fyrra ári.
Þá fjölgaði sjúkraflutningum á árinu en meðal annars var nokkuð um útköll til Vestmannaeyja og á sunnanverða Vestfirði sem hefðbundið sjúkraflug gat ekki annast sökum veðurs eða slæms skyggnis. Af útköllunum 299 voru 136 þeirra á hæsta forgangi.
Fyrra met var sett árið 2018 en þá annaðist Landhelgisgæslan 278 útköll með loftförum stofnunarinnar.

Nýjustu fréttir

Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
ÍBV tryggði sér þriðja sætið með sigri á Stjörnunni
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.