Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Gísli Steingrímsson frá Vestmannaeyjum, Hjaltabakka 24 Breiðholti.
Lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð þriðjudaginn 3. Janúar, Útförin fer fram frá Seljakirkju þann 19. janúar kl. 15.
Erla Jóhannsdóttir
Heba Gísladóttir Bernódus Alfreðsson
Jón Helgi Gíslason
Jóhann Friðrik Gíslason Anna María Birgisdóttir
Halla Gísladóttir
Ragnar Hólm Gíslason Svandís Bergsdóttir
Rósalind Gísladóttir Gunnar Kristmannsson
Barnabörn og barna barnabörn
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.