mkvæmt nýlegri könnun Maskínu sem gerð var fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjuna virðist ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fallin.

Ríkisstjórnarflokkarnir þrír, Framsóknarflokkur (B), Sjálfstæðisflokkur (D) og Vinstrihreyfingin grænt framboð (V) dala allir frá síðustu kosningum. Skv. áætluðu þingmannatali gætu flokkarnir þrír aðeins fengið 30 þingmenn samanlagt og skortir því tvo til þess að halda naumum meirihluta. Þess má geta að í upphafi kjörtímabilsins hafði ríkisstjórnin og flokkar hennar saman 35 þingmenn en síðar á tímabilinu gengu tveir þingmenn úr Vinstrihreyfingunni.

Ljóst er að einhverjar breytingar verða á þingmönnum, bæði vegna kosninga en einnig sökum breytinga á framboðslistum flokkana. Alþingiskosningarnar verða laugardaginn 25. september n.k.

Eftirfarandi breytingar gætu þannig átt sér stað að sinni:

Framsóknarflokkur (B)
Silja Dögg Gunnars­dóttir, hefur setið á þingi síðan 2013 fyrir Framsóknarflokkinn. Hún hefur skipað annað sæti listans í þrennum kosningum. Á kjörtímabilinu hefur Silja verið formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs og setið í Utanríkismálanefnd, Efnahags- og viðskiptanefnd, Allsherjar- og menntamálanefnd og Þingmannanefnd Íslands og ESB. Silja beið lægri hlut gegn Jóhanni Friðriki Friðrikssyni í prófkjöri flokksins og hafnaði á endanum boði um þriðja sæti listans.
Jóhann Friðrik Friðriksson tekur því við öðru sætinu af Silju en Silja situr í heiðurssæti listans.

Sjálfstæðisflokkur (D)
Páll Magnússon, hefur setið á þingi síðan 2016 og leitt lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu í gegnum tvennar kosningar. Á kjörtímabilinu hefur Páll verið formaður Atvinnuveganefndar ásamt formennsku í Allsherjar- og menntamálanefndar og setið í Fjárlaganefnd og Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES. Páll stefndi á endurkjör í prófkjörsbáráttu Sjálfstæðisflokksins en dró framboð sitt óvænt til baka í vor.
Guðrún Hafsteinsdóttir tekur við oddvitasætinu af Páli.

Flokkur fólksins (F)
Óljóst er hvort að Karl Gauti Hjaltason haldi sæti sínu á Alþingi eftir kosningar en þá a.m.k. ekki fyrir hönd Flokks fólksins né í Suðurkjördæmi. Karl Gauti kom nýr inn á þing 2017 og var oddviti síns flokks í kjördæminu. Var það í fyrsta sinn sem Flokkur fólksins náði kjöri eftir að hafa einnig boðið fram árinu áður. Um mitt kjörtímabil yfirgaf Karl Gauti Flokk fólksins og eftir srutta viðveru utan flokka gekk hann til liðs við Miðflokkinn. Í komandi kosningum mun hann leiða lista Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi. Á kjörtímabilinu hefur Karl Gauti setið í Kjörbréfanefnd og Umhverfis- og samgöngunefnd.
Flokkur fólksins hefur ekki birt framboðslista sína fyrir kosningarnar en skv. könnun má áætla að flokkurinn detti út af þingi.

Miðflokkur (M)
Óljóst er hvort að Birgir Þórarinsson haldi sæti sínu á Alþingi eftir kosningar en hann er enn oddviti síns flokks í kjördæminu. Birgir stefnir á endurkjör en Miðflokknum er þó spáð lakari árangri nú en 2017 og gæti fjöldi kjörinna þingmanna flokksins farið úr 7 í 3. Birgir kom nýr inn á þing með nýjum flokki 2017 en hafði áður verið varaþingmaður Framsóknarflokksins kjörtímabilið 2009-2013. Á kjörtímabilinu hefur Birgir setið í Kjörbréfanefnd og Fjárlaganefnd.

Píratar (P)
Smári McCarthy, hefur setið á þingi síðan 2016 og leitt lista Pírata í kjördæminu í gegnum tvennar kosningar. Á kjörtímabilinu hefur Smári verið formaður Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES og setið í Efnahags- og viðskiptanefnd, Atvinnuveganefnd og Utanríkismálanefnd. Í tilkynningu frá þingflokki Pírata síðasta haust kom fram að Smári hyggðist hætta á þingi þar sem hann vildi ekki ílengjast í starfinu.
Álfheiður Eymarsdóttir tekur við oddvitasætinu af Smára.

Vinstrihreyfingin grænt framboð (V)
Ari Trausti Guðmundsson, hefur setið á þingi síðan 2016 og leitt lista VG í kjördæminu í gegnum tvennar kosningar. Á kjörtímabilinu hefur Ari Trausti verið formaður Íslandsdeildar þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál og setið í Umhverfis- og samgöngunefnd og Utanríkismálanefnd. Ari Trausti tilkynnti það seint á síðasta ári að hann hyggðist ekki bjóða sig fram að nýju og þar með ákveðið að hætta á Alþingi.
Hólmfríður Árnadóttir tekur við oddvitasætinu af Ara Trausta.

Þingmenn
Myndir: Althingi.is

Þeir sem sækjast eftir áframhaldandi þingsetu í kjördæminu og eiga þar kost á endurkjöri eru Sigurður Ingi Jóhannesson formaður Framsóknarflokksins (B), Oddný G. Harðardóttir fyrir Samfylkinguna (S) og þeir Vilhjálmur Árnason og Ásmundur Friðriksson fyrir Sjálfstæðisflokkinn (D) en þeir skipa annað og þriðja sæti á lista síns flokks.

Viðreisn missti þingmann sinn í kjördæminu í kosningunum 2017. Nýr oddviti listans er Guðbrandur Einarsson. Guð­mundur Auðuns­son leiðir svo nýjan lista Sósíalistaflokksins í kjördæminu. Sósíalistum er spáð þingseta.