Einstaka lundi er farinn að sjást í Vestmannaeyjum en að sögn Erps Snæs Hansen, forstöðumanns Náttúrustofu Suðurlands í Vestmannaeyjum, er þó ekki enn hægt að tala um að lundinn hafi sest upp í Eyjum. Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag.
„Hann er ekki farinn að sýna sig í neinu magni ennþá. Þegar talað er um að hann setjist upp þá kemur öll heila hersingin og sest upp, það er hinn eiginlegi lundadagur.“
Erpur segir að samkvæmt venju sé hann sestur upp um 15. apríl og því sé lundinn heldur seinn í því en þeir hljóti þó að koma á næstu dögum.
Inntur eftir því hvort hann hafi áhyggjur af því að fuglaflensan, sem finnst nú á landinu, muni herja á lundann segir Erpur menn vissulega hafa áhyggjur af því.
Hætt er við að töluvert sé um fuglaflensusmit í villtum fuglum um þessar mundir, en hann nefnir að meðal annars hafi fundist súla í Eldey með smit.
„Það er eitthvað einkennilegt í gangi í Eldey. Fuglum hefur fækkað töluvert mikið frá því í lok mars,“ segir Erpur og bætir við að það sé mjög óvanalegt. Dauðir fuglar séu í forgrunni í myndavélum í eyjunni.
Hann segir að því geti verið að fuglarnir hafi farið af eyjunni til þess að forða sér frá veirunni. Þá segir Erpur að einnig gætu aðrir sjúkdómar hrjáð súluna eða þörungaeitranir valdið usla.
„Samskiptin eru töluverð á þessum fuglum og Eldey er ekki langt frá Vestmanneyjum,“ segir hann en tíu þúsund súlupör eru í Vestmannaeyjum í fjórum súlubyggðum. „Þetta verpir allt hvað innan um annað, þannig að ef þetta er mjög smitandi þá er ekki ólíklegt að þetta geti dreifst,“ segir Erpur og bætir við að um ein og hálf milljón lunda komi til Eyja á hverju ári. Því geti afleiðingarnar orðið allsvaðalegar ef veiran er svæsin.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.