Aldrei fleiri konur en nú

Íslandsmótið í golfi hófst í Eyjum í dag, en 108 keppendur eru skráðir til leiks í karlaflokki og 44 í kvennaflokki og aldrei hafa fleiri konur tekið þátt.

Keppni í kvennaflokki er lokið í dag og Ólafía Þórunn lék á 74 höggum sem eru fjögur högg yfir pari og skila henni þriðja sætinu. Guðrún Brá lék á sex höggum yfir pari og er í fimmta sæti en það var Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR sem lék best í dag. Hún kláraði hringinn á 70 höggum og er því á pari.

„Gaman, svolítið mikill vindur. Kemur inn á milli,“ sagði Perla Sól eftir hringinn í dag. „Það er bara eitt högg í einu og sjá hvað kemur út úr því.“

Hola í höggi hefur nú þegar litið dagsins ljós á mótinu en Arnar Snær Hákonarson fór holu í höggi á sjöundu holu í dag, hann lauk leik í dag svo á einu höggi yfir pari vallarins og er eins og stendur í 18 sæti. Ríkjandi Íslandsmeistarinn Aron Snær Júlíusson hefur klárað sinn hring í dag og gerði það á 68 höggum eða 2 höggum undir pari, líkt og þrír aðrir kylfingar. Keppni stendur enn yfir en það er Kristófer Orri Þórðarson úr GKG sem leiðir í karlaflokki. Hann fór fyrsta hringinn á 66 höggum, fjórum höggum undir pari, og var nokkuð sáttur með daginn.

„Þetta var svolítið að halda boltanum í leik og vera þolinmóður. Völlurinn er strembinn í svona vindi. Vindurinn er fljótur að snúa sér. Síðan þegar maður er búinn að taka ákvörðun að halda sig við hana,“ sagði Kristófer Orri eftir hringinn. „Það er lítið hægt að sjá að það hafi verið Þjóðhátíð hérna fyrir utan kannski sjöttu holu. Annars er völlurinn í toppstandi.“

RÚV mun sýna beint frá Íslandsmótinu á laugardag og sunnudag. Útsending hefst klukkan 15 á laugardag en klukkan 14:30 á sunnudag.

Þetta kemur fram á RÚV.IS

Arnar Snær Hákonarson með holu í höggi á 7. holu! Fullkomið högg, 176 metrar með sex járni sem lenti 1-2 metra frá holunni. 

Nýjustu fréttir

Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.