Árshátíð aflýst, út að borða í staðinn

Árshátíð Vinnslustöðvarinnar er aflýst vegna veirufaraldursins. Samkoman hefði að öllu eðlilegu verið núna í október með annáluðum glæsibrag; dýrindis mat, skemmtiatriðum, dansi og herlegheitum í góðum félagsskap – allt í boði fyrirtækisins handa starfsmönnum og mökum þeirra.

Skarðið sem árshátíðin skilur eftir sig í ár verður auðvitað ekki fyllt en svona gerist á síðustu og verstu farsóttartímum. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að Vinnslustöðin færir hverjum starfsmanni sínum ávísun upp á tíu þúsund krónur og með henni er hægt að greiða fyrir mat á þremur veitingastöðum í Eyjum: Einsa kalda, Gott eða Tanganum.

Vinnslustöðin býður þannig starfsmönnum sínum út að borða í sárabótarskyni en hvetur þá jafnframt til þess að fara ekki saman í stórum hópum og ganga hægt um gleðinnar dyr.

„Við höfum fengið ótrúlega jákvæð og góð viðbrögð frá starfsmönnum og reyndar í bæjarfélaginu yfirleitt. Fólk er afar þakklátt fyrir ákvörðun fyrirtækisins og skilur vel að ekki er mögulegt að efna til árshátíðar í ástandinu sem ríkir því miður í þjóðfélaginu um þessar mundir,“  segir Lilja Björg Arngrímsdóttir sviðsstjóri mannauðs- og lögfræðisviðs Vinnslustöðvarinnar.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.