Auðurinn í drengjunum okkar
Öll getum við sammælst um það að vilja börnunum okkar það besta. Við viljum hjálpa þeim að finna styrkleika sína og áhugasvið, efla sjálfstraust þeirra og hvetja þau áfram til þess að geta orðið virkir þátttakendur í samfélaginu.

Á Íslandi er skólaskylda. Hvergi annars staðar í þjóðfélaginu eru einstaklingar skyldugir að mæta. Ef vinnustaður barna skilar ekki tilskildum árangri og börnunum líður ekki vel þar, þá verður að endurskoða hlutina. Með sameiginlegu átaki getum við betrumbætt skólakerfið og gefið börnunum okkar tækifæri og framúrskarandi umhverfi til að blómstra. Ekkert barn á að þurfa að týnast á Íslandi sökum ósanngjarnra áskorana í opinberu kerfi sem allir verða að ganga í gegnum í tíu ár.

Miklar umræður hafa skapast um skólamál að undanförnu, meðal annars í kjölfarið af vandaðri umfjöllun í þáttunum Börnin okkar sem eru sýndir á RÚV á sunnudagskvöldum og vegna leshraðamælinga barna. Við fögnum þessari umræðu sem samfélagið allt þarf að taka þátt í.

Drengir standa höllum fæti

Sú staðreynd hefur legið fyrir í um aldarfjórðung að drengir standa höllum fæti í íslensku skólakerfi. Þetta staðfesta fjöldi rannsókna, innlendar sem erlendar. Ein af þeim sem hefur ómað hvað hæst er að 34,4% drengja geta ekki lesið sér til gagns við útskrift úr grunnskóla skv. alþjóðlegum mælingum PISA.

Þetta er nær tvöfalt hærra hlutfall en hjá stúlkum og töluvert hærra en í öðrum ríkjum. Þessi samanburður versnar stöðugt því hlutfallið var t.a.m. 24% árið 2009. Í lesskilningi er hærra hlutfall drengja í lægri hæfnisþrepum á Íslandi en að jafnaði í OECD ríkjunum. Ísland stendur sér á báti meðal Norðurlanda þar sem drengir eru eftirbátar stúlkna í öllum mældum greinum PISA.

Margvíslegar rannsóknir og skoðanakannanir á vegum hins opinbera, skóla og alþjóðlegra mælinga hafa sýnt fram á þætti eins og að kennarar hrósa frekar stúlkum en drengjum og að drengjum finnst námið ekki nærri jafn skemmtilegt og stúlkum. Þá sjá drengir oft lítinn tilgang í því að vera í skóla. Karlkyns fyrirmyndum innan veggja skólans hefur einnig fækkað hratt og voru einungis 17,5% kennara karlar árið 2020 og hafði þá fækkað jafnt og þétt í nær aldarfjórðung.

Það er áhyggjuefni að brottfall drengja í framhaldsskóla er 40% meira en brottfall stúlkna. Í Háskóla Íslands eru aðeins 32,1% af nemendum karlkyns og hefur hlutfallið lækkað hratt undanfarin ár en það var 37,2% fyrir aðeins þremur árum. Þetta lága hlutfall er ekki vegna þess að konur hafi óvenju hátt skráningarhlutfall í framhaldsnám. Innritunarstig kvenna í háskóla á Íslandi er við meðaltal OECD en innritunarstig karla undanfarin ár er hinsvegar með því lægsta sem mælist. Árið 2020 voru 47,6% kvenna með háskólamenntun en einungis 34,3% karla. Þessi munur eykst ár frá ári og er „óvíða jafn mikill og á Íslandi“ eins og kom fram í skýrslu Mennta- og menningarmálaráðuneytis um samantekt á menntatölfræði OECD frá 2018.

Í kjölfar áskorunar drengja í menntakerfinu undanfarna áratugi hefur ungum karlmönnum með örorku fjölgað mjög. Síðustu tuttugu ár hefur ungum karlmönnum á aldrinum 18-29 ára sem eru á 75% örorku fjölgað um 74% skv. gögnum frá Tryggingastofnun ríkisins. Strax árið 2017 lýsti þáverandi heilbrigðisráðherra, Óttar Proppé, yfir þungum áhyggjum vegna mikillar fjölgunar ungra karlmanna á örorku og þá sérstaklega vegna geðraskana.

Niðurstaðan blasir við: Samfélagið er svo sannarlega ekki að ná því besta úr mannauði drengjanna okkar.

Hvað getum við gert?

Ný menntastefna var samþykkt til tíu ára á Alþingi árið 2021. Þá lá allt framangreint fyrir en ekki er minnst á stöðu drengja að því undanskildu að í nefndaráliti með stefnunni kom fram að mikið var fjallað um þessa stöðu drengja og hugsanlegar lausnir og telur nefndin að taka verði á þessum vanda og finna árangursríka leið til þess að vinna bug á honum.”

Síðan hefur enginn starfshópur verið eyrnamerktur áskorun drengja í menntakerfinu og ekkert fjármagn hefur verið lagt fram til að bregðast við áskorun drengja.

Örfá verkefni hafa farið í gang s.l. ár þar sem sérstaklega er brugðist við vel mældum áskorunum drengja. Eitt þeirra er Kveikjum neistann, samstarfsverkefni Vestmannaeyjabæjar, Samtaka atvinnulífsins, menntamálaráðuneytisins, Háskóla Íslands og Grunnskóla Vestmannaeyja. Það verkefni virðist hafa náð flugi vegna frumkvæðis og vilja sveitarfélags og grunnskóla til að leggja sitt af mörkum gagnvart áskoruninni.

Verkefnið byggir meðal annars á áhugadrifnu námi og aukinni hreyfingu og er stefnan að líðan og árangur drengja og stúlkna muni aukast og gefa fyrstu niðurstöður tilefni til bjartsýni. Þá hafa einstaka skólar unnið með ólíkar lausnir fyrir ólíkar þarfir kynjanna í kennslu undanfarin ár með margvíslegum góðum árangri.

En betur má ef duga skal.

Hér fylgir samantekt á nokkrum tækifærum sem hafa verið rædd undanfarin ár af fróðu fólki og sérfræðingum í þessum efnum bæði hérlendis og erlendis. Listinn er svo sannarlega ekki tæmandi né hið eina rétta, heldur fyrst og fremst áminning um að hægt sé að sækja fram víða og á fjölbreyttan hátt.

  • Nálgumst þessa áskorun af mildi þar sem vellíðan barna okkar er alltaf fremsti forgangur.
  • Viðurkennum mikilvægi tilgangs, hlutverks og virkni hvers barns í menntun sinni og mótum mælikvarða til gæðaviðmiðunar.
  • Setjum upp áhuga- og þátttökumælikvarða á nám sem fylgt er eftir með því markmiði að börn upplifi tilgang með námi sínu og hafi mælanleg markmið sem þau skilja og vinna að.
  • Styðjum einstaka sveitarfélög og skóla til að sækja fram og koma með sínar lausnir til að mynda með fjárframlögum eða sóknarsjóðum sem sveitarfélög, ríki og atvinnulíf leggja til.
  • Ráðumst í sókn í menntatækni. Til er fjöldi dæma víða um stórbættan árangur í kennslu barna, t.a.m. stærðfræði- og lestrarkennslu í gegnum tölvuleiki.
  • Gerum kennslu að eftirsóknarverðari starfsgrein með betri launum, tækifærum til nýsköpunar kennsluaðferða og öflugu stuðningsumhverfi.
  • Setjum í forgang að öll börn séu fulllæs í lok 2. bekkjar og nái góðum árangri í lesskilningi á flóknari texta við lok fimmta bekkjar.
  • Umvefjum börn að erlendum uppruna og veitum þeim öfluga kennslu í íslensku þar sem stefnt er að þau verði öll fulllæs, tveimur árum eftir að þau koma í íslenskan skóla.
  • Eflum málþroskakennslu á öllum stigum með stuðningi sérfræðinga eins og talmeinafræðinga og virkjum list- og nýsköpun með tungumál.
  • Gerum námið áhugavert og skemmtilegt fyrir öll börn t.a.m. með þverfaglegu skapandi starfi og leik.
  • Hjálpum foreldrum með skýr markmið, þjálfun og verkfæri til að styðja drengina sína og stúlkur sem eiga við framangreindar áskoranir að etja og leiðbeina til betri vegar með stuðningi umhverfisins.

Vissulega er áskorunin flókin og umfangsmikil. Fyrsta skrefið hlýtur að vera að viðurkenna að vandi sé til staðar og að hann sé alvarlegur. Næsta skref kann að vera að reyna að ná fram skipulagi á umræðum, leita að lausnamengi og bjóða skólum, atvinnulífi, stjórnvöldum og sveitarfélögum að sækja fram saman. Flestir geta líklega sammælst um það að við viljum og eigum að geta boðið börnunum okkar upp á skólagöngu þar sem við vekjum áhuga þeirra og ræktum forvitni í umhverfi þar sem vellíðan og tilgangur þrífst.

  • Frú Vigdís Finnbogadóttir
  • Arnar Ævarsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla
  • Ásta Fjeldsted, forstjóri Festis
  • Erna Arnardóttir, mannauðsstjóri CCP
  • Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, fjármálastjóri og aðstoðarforstjóri Atnorth
  • Finnur Oddsson, forstjóri Haga
  • Guðríður Svana Bjarnadóttir, forstöðumaður strategic partnerships hjá Marel
  • Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
  • Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66 Norður
  • Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona
  • Inga Lind Karlsdóttir, fjölmiðlakona og framleiðandi
  • Jón Pétur Zimsen, aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla
  • Júníus Meyvant, tónlistarmaður
  • Liv Bergþórsdóttir, forstjóri
  • Magnea Huld Aradóttir, grunnskólakennari
  • Magnús Scheving, frumkvöðull
  • Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi Hjallastefnunnar
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins
  • Snorri Björnsson, hlaðvarpsstjórnandi
  • Svafa Grönfeldt, prófessor hjá MIT
  • Tryggvi Hjaltason, formaður Hugverkaráðs
  • Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Kara Connect
  • Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur
  • Þorvaldur Davíð Kristjánsson, leikari

Greinin birtist fyrst á visir.is

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.