Sjötta skipið á árinu bætist í flota Vestmannaeyinga

Dala-Rafn heitir þorskskip sem Þórður Rafn útgerðarmaður í Vestmannaeyjum hefur fest kaup á. Skipið kom siglandi inn í höfnina í Eyjum fyrir stundu. Dala-Rafn er sjötta skipið sem bætist við flota Vestmannaeyinga á árinu en þrjú skip hafa verið seld frá Eyjum á þessu ári. Af þessum sex skipum eru þrjú þeirra nýsmíðuð. Talið er […]

Jólablað Vaktarinnar komið út

Nú er jólablað Vaktarinnar á leið í hvert hús í Vestmannaeyjum. Blaðið er stærra en vanalega og fullt af skemmtilegu efni. Vilhelm G. Kristinsson ræðir við Bergvin Oddsson, útgerðarmann sem nú er hættur að róa og stýrir útgerðinni úr landi. Rætt er við Sævar Helga Geirsson um tónleika sem hann og félagar hans halda til […]

Framsóknarblaðið á netinu

Framsóknarblaðið er komið út og hægt er að nálgast það í pdf útgáfu hér eyjafrettum með því að smella á forsíðumyndina til vinstri. (meira…)

Gott í skóinn eftir Þorstein Lýðsson

Við höldum áfram með jólalag dagsins og dag verður frumflutt nýtt jólalag eftir Þorstein Lýðsson.   Lagið sem við frumflytjum í dag er lagið Gott í skóinn og er það Þorsteinn sjálfur sem syngur lagið en faðir hans Lýður Ægisson samdi textann. En þeir feðgar hafa unnið að tónlist saman áður m.a. sendu þeir unni sjómannalagakeppni Rásar 2 á […]

Dala-Rafn leggst að bryggju klukkan 13.00

Í dag, föstudag er von á nýju skipi til Vestmannaeyja, Dala Rafni VE 508. Dala-Rafn er smíðaður í Póllandi og eru það hjónin Inga Eymundsdóttir og Þórður Rafn Sigurðsson sem eiga skipið sem leggst að bryggju klukkan 13.00 í dag. (meira…)

VSV langtímafjárfesting

Guðrún Erlingsdóttir, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja, segir við Morgunblaðið að bréf sjóðsins í Vinnslustöðinni (VSV) séu langtímafjárfesting og ekki standi til að selja þau. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær samþykkti stjórn sjóðsins að hafna tilboði Ísfélagsins og Kristins ehf. í bréfin. „Samþykkt stjórnarinnar var einróma og átakalaus. Við tókum þá stefnu fyrr á […]

Best skreyttu húsin í Árborg

Best skreyttu húsin í Árborg hafa verið valin og voru eigendur þeirra verðlaunaðir sl. þriðjudag. Fallegustu heimilin eru við Laufhaga 6 á Selfossi, hjá Guðmundi Guðmundssyni og Lilju Kristinsdóttur og Tryggvagötu 3 á Selfossi hjá þeim Þorsteini og Fjólu sem eru á myndinni að ofan. Hárgreiðslustofan Mensý við Austurveg 29 var best skreytta fyrirtækið annað […]

�?jóðfræðinám útilokað án frekari styrkja

Verkefnastjóri Þjóðfræðimiðstöðvarinnar á Stokkseyri er vonsvikinn með úthlutun á fjárlögum ríkisins. Með þeim sex milljónum króna sem miðstöðin fær, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu, verður ekki hægt að koma á laggirnar þjóðfræðinámi eins og til stóð. (meira…)

Dagforeldra-greiðslur hækkaðar

Samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborg fyrir árið 2008 verða niðurgreiðslur vegna vistunar barna hjá dagforeldrum hækkaðar. (meira…)

Viðburðaríkt 100 ára afmælisár framundan

Aðalfundur Umf. Laugdæla var haldinn 12. desember sl. í grunnskólanum að Laugarvatni. Frestast hefur allt árið að halda fundinn sökum veikinda bókara félagsins sem unnið hefur að afstemmingum reikninga aftur til 2003. Á fundinum voru því lagðir fyrir og samþykktir ársreikningar áranna 2003, 2004, 2005 og 2006. Vandamálin lágu í bókun og afsetmmingu reikninga ársins […]

Jólatrésskemmtun á Eyrarbakka

Kvenfélagið á Eyrarbakka heldur sína árlegu Jólatrésskemtun laugardaginn 29. desember frá kl 11.00 til 13.00. (meira…)

Friðarljósið gefið í Kotstrandarkirkju

Bænastund verður í Kotstrandarkirkju kl. 13:00 á aðfangadag. Sr. Jón Ragnarsson, minnist látinna og biður fyrir komandi jólum og friði mönnum til handa. Að bænastundinni lokinni munu skátar gefa Friðarljósið frá Betlehem þeim sem það vilja þiggja til að tendra við leiði í kirkjugarðinum. (meira…)

Skáldin í Sunnlenska bókakaffinu

Sunnlenska bókakaffið á Selfossi verður með upplestur og bókakynningar á fimmtudag og föstudag. Á fimmtudagskvöldið mæta m.a. skáldin Þráinn Berthelson, Valur Gunnarsson og Pétur Gunnarsson og kynna nýjar bækur sínar. Þráinn sendir nú frá sér frábæra spennusögu, Englar dauðans, Valur Konung norðursins en frá Pétri kemur út bók um líf Þórbergs Þórðarsonar, ÞÞ í fátæktarlandi. […]

Ungmennaráð stofnað

Sérstakt ungmennaráð verður stofnað í Sveitarfélaginu Árborg. Ráðið verður bæjarstjórn Árborgar til ráðgjafar í málefnum ungs fólks í sveitarfélaginu. (meira…)

Voodoo hnífastandur

Þessi snilldar hnífastandur í mannsmynd er einkar hentug jólagjöf. Sé fyrir mér hvernig maður tekur á vissan hátt út reiði sína í garð einhvers án þess þó að meiða hann í raun – nema að þetta sé alvöru VOODOO brúða, það væri húmor í því. Prentsmiðjan er nú að reyna að ganga frá samningum við […]

Kaffihúsakórinn og Lúðrasveit Vestmannaeyja í útibúi Glitnis á morgun.

Á morgun föstudag verður Kaffihúsakórinn í útibúi bankans kl 13:30 og syngur nokkur lög. Kaffihúsakórinn verður með tónleika á föstudagskvöldi og laugardaginn og mun kórinn hita upp fyrir tónleikana í bankanum. Einnig mun Lúðrasveit Vestmannaeyja spila í útibúinu kl 15:00 og spila nokkur vel valin jólalög.   (meira…)

Vinamót eftir Bergþór Pálsson

Í þessari fallegu bók eru gefin fjölmörg góð ráð um hvernig gera skal góða veislu ógleymanlega. Fjallað er um val á gestum, boðskort, borðbúnað, móttöku gestanna, hvernig best sé að skipa þeim til sætis, samræðulist og tækifærisræður, líkamsstöðu og klæðnað, borðsiði og skálaræður og ótalmargt fleira. Jafnframt er lögð áhersla á að hlýlegt og létt […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.