Lítill fugl stoppar jólahaldið

Ritstjórn Eyjafrétta fékk senda stutta sögu frá Óskari Pétri Friðrikssyni en sagan átti sér stað á aðfangadag. Þá fangaði hundur heimilisins haftyrðling sem er flækingsfugl hér á landi en lifir á Grænlandi. Fuglinn var að niðurlotum kominn og fékk frítt fæði og húsnæði yfir nóttina en var sleppt að því loknu. Söguna má lesa hér […]
Verður Margrét Lára íþróttamaður ársins 2007?

Á morgun föstudag verður tilkynnt hver verður valinn Íþróttamaður ársins 2007 á Grand Hótel Reykjavík. Knattspyrnukonan Margrét Lára Viðarsdóttir er í hópi 10 efstu í ár í vali íþróttafréttamanna en Margrét var einnig á topp 10 listanum á síðasta ári. Margrét Lára á að baki gott ár fyrir Val og Íslenska landsliðið og nýverið var […]
Lítill fugl stöðvar jólahaldið

Fjölskylda í Vestmannaeyjum fékk óvænta heimsókn á aðfangadagskvöld þegar labradorhundurinn Brjánsi bauð haftyrðli heim í jólastemminguna. Hundurinn, sem vanur er að hjálpa til við að ná og sleppa lundapysjum hafði farið út að viðra sig með eiganda sínum þegar örþreyttur haftyrðill varð á vegi þeirra. Þreyta fuglsins gerði það að verkum að hundurinn átti auðvelt […]
Það eru jólin, er það ekki???

Jólin er sá árstími þar sem maður fyllist einhverjum skemmtilegum krafti og tilhlökkun og langar virkilega til að sýna væntumþykju til þeirra sem standa manni næst. Þetta er kannski líka sá tími þar sem algengast er að maður ylji sér á æskuminningunum, hvernig jólin voru þegar maður var krakki. Í því samhengi vill maður helst […]
Menningarkvöld í �?orlákskirkju

Síðustu tónleikar Tóna við hafið á þessu ári verða föstudaginn 28. desember. Þá mun Jónas Ingimundarson, píanóleikari flytja sónötu eftir Beethoven, Söngfélag Þorlákshafnar syngur nokkur jólalög og Margrét Frímannsdóttir flytur erindi sem tengist hátíðinni sem nú fer í hönd. Með þessari dagskrá er verið að endurvekja þá menningarstund sem Jónas Ingimundarson stóð fyrir á þessum […]
Gleðileg jól!

Jólin eru gengin í garð í Eyjum, sem annarsstaðar. Aftansöngur hófst í Landakirkju kl. 18.00 og síðan verður hátiðarhelgistund kl. 23.30. Þá er einstaklega fallegt í kirkjugarðinum í dag, þar loga kertaljós við nánast hvert leiði en þar var helgistund eftir hádegið og mikill fjöldi fólks samankomin. Veðrið leikur við hvern sinn fingur og jólastemmningin […]
Gleðileg jól

Þegar nær er komið jólumOg næturhiminn skínBjart er yfir flestum bólumOft það okkur villir sínÞví það hafa ekki allir sömu gæðieins og flest við höfum hinJá gefðu öllum jólinLjúfi Eyja jólin mín. Höf:Sigurður Óskarsson Eigendur 24seven ehf rekstraraðili www.eyjar.net óska öllum eyjamönnum nær og fjær gleðilegra jóla. (meira…)
Gleðileg jól…
Ísland væri miklu betur statt ef að ekki væri fyrir alla þessa heimskingja og aumingja sem vinna láglaunastörf og eru oftar ekki baggi á þjóðfélaginu. Það yrði bara sjálfsafgreiðsla í þessum búðum eins og Bónus, Rúmfatalagernum og öðrum ömurlegum verslunum. Svo væri hægt að troða öllum Pólverjunum í að skúra og hreinsa göturnar svo að […]
Úthlutað úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja

Árleg úthlutun úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja fór fram í gærdag. Styrktar- og menningarsjóðurinn var stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson fyrrverandi sparisjóðsstjóra og er þetta í tuttugasta skiptið sem úthlutað er úr sjóðnum, en fyrsta úthlutunin var á Þorláksmessu árið 1988. Að þessu sinni fengu eftirfarandi styrki: GaujulundurÞað var sumarið 1988 […]
Milljarða þakkir fyrir Eyjajól

Í gærdag skellti ég mér á tónleika í Hvítasunnukirkjunni með Kaffihúsakórnum og Óskari og Laugu. Umgjörðin sem tók á móti tónleikagestum var glæsileg og greinilegt var frá upphafi að mikill metnaður hafði verið lagður í verkið allt. Sviðsmyndin var öll hin glæsilegasta og myndaði sterka heild utan um hljómsveitina og kórinn upp á sviðinu. Hver […]
Sigurður Ari með átta mörk

Sigurður Ari Stefánsson skoraði 8 mörk fyrir Elverum í 30:28-sigri liðsins s.l. miðvikudag gegn Sandefjord á útivelli. Þetta var síðasta umferðin í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik fyrir Evrópumeistaramót landsliða sem hefst í Noregi í janúar. Elverum er í 5. sæti deildarinnar. (meira…)
Slökkvilið Vestmannaeyja kallað út að einbýlishúsi

Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað út klukkan 12:15 í dag að Hásteinsvegi 20 en kviknað hafði í þvottavél í kjallara hússins. Þvottavélin var staðsett á baðherbergi íbúðarinnar og náði ekki að læsa sig í neinu öðru og því gekk slökkvistarf fljótt og örugglega fyrir sig. (meira…)
Kviknaði í útfrá þvottavél

Rétt eftir 12:00 kom útkall á slökkvilið Vestmannaeyja þar sem kviknað hafði í út frá þvottavél húsi á Hásteinsvegi. Slökktu lögreglumenn í eldinum með duftslökkvitæki og reykræsti slökkviliðið baðherbergið. Lítið tjón varð en það var til happs að húsráðandi varð var við eldinn og náði að gera viðvart áður en eldurinn náði að breiðast út. […]
Lifandi gína í jólaösinni

Þeim brá mörgum í brún sem gengu fram hjá skóverslun Axel Ó. í Vestmannaeyjum í gær. Lifandi gína var í glugganum sem fæstir áttu von á. Kappinn kynnti nýjustu línuna í sundfatnaðinum en svo skemmtilega vill til að hann mun ganga í það heilaga milli jóla og nýárs. Stúlkurnar virtust hins vegar taka þessari nýbreytni […]
Þrír ættliðir sigldu skipinu til hafnar
Dala-Rafn VE 508 kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í fyrsta skipti í gær. Skipið er smíðað í Póllandi og er fimmta skip útgerðar í eigu hjónanna Þórðar Rafns Sigurðssonar og Ingu Eymundsdóttur. Þórður Rafn er skipstjóri á Dala-Rafni, en auk hans sigldu skipinu frá Póllandi sonur hans Eyþór og sonarsonur Ingi Rafn. Þrír ættliðir voru […]
Stórgóðir jólatónleikar í Höllinni

Í kvöld voru haldnir jólatónleikarnir Hátíð nú er hér en Óskar Sigurðsson hefur yfirumsjón með tónleikunum. Fjölmargir komu fram á tónleikunum, m.a. kaffihúsakórinn en tónleikarnir voru mjög vel sóttir og nánast fullt. Öll umgjörð tónleikanna var glæsileg, flott sviðsmynd og lýsingin í takti við hana og tónlistin toppaði svo allt saman. Þannig að óhætt er […]
Nýr Dala Rafn kominn til heimahafnar í Eyjum
Fjöldi manns tók á móti Dala Rafni VE þegar hann lagðist að bryggju í Vestmannaeyjum rétt eftir hádegi í dag. Er þetta sjötta nýja skipið sem kemur til Vestmannaeyja á þessu ári. (meira…)
Nútíma jólasveinar
Jólasveinar eru hluti af íslenskum jólum. Sumir halda uppá þessa gömlu jólasveinar, aðrir vilja Kóka kóla sveinana. Svo eru komnir til sögunnar nútíma jólasveinar með nútíma jólasveinarvísur. (meira…)
Tapað – fundið
Í morgun fannst peningabudda með talsverðum peningum og greiðslukortakvittum, á Miðstrætinu. Lögreglan hafði samband við eyjafrettir og óskaði að koma þessu á framfæri. Ef einhver saknar þessarar buddu, hafðu þá samband við lögregluna. (meira…)
Bæði í kvöld og á morgun

Í kvöld klukkan 20.00 verða tónleikarnir Hátíðin nú er hér, með Óskari, Laugu og vinum þeirra. Óskar Sigurðsson, kórstjóri kaffihúsakórsins hefur umsjón með tónleikunum en fram koma þau hjónin Óskar og Lauga, kaffihúsakórinn, Þórarinn Ólason, Sæþór Vídó, Margrét, Guðni, Silja Elsabet, Valdimar Karl, Helga, Arnór og félagar og fleiri frábærir tónlistarmenn. (meira…)