Hörpuskel að hætti Jóa Fel

Ritstjóri eyjar.net er mikill áhugamaður um matreiðsluþætti og veit fátt skemmtilegra en að sjá góðan matreiðsluþátt. Yfirleitt reynist í framhaldi erfiðara að elda eftir þáttunum en stundum hefur það tekist með góðum árangri. Þessi uppskrift sem er hér að neðan er frá Jóa Fel.3 stk hörpudiskur pr.mann 50gr smjör 50gr olía 2 stk hvítlauksgeirar Smjör, […]

Menningarhús

Ég er í nefnd um byggingu menningarhús í Vestmannaeyjum. Með mér í nefndinni eru Gunnlaugur Grettisson, Frosti Gíslason og Karítas Gunnarsdóttir. Ég ætla nú ekki að fara í forsögu þessa máls, en í stuttu máli ákvað ríkisstjórn Davíðs Oddsonar fyrir mörgum árum að setja fjármagn í byggingu fjögurra menningarhúsa úti á landi. Eitt á að […]

Vel heppnaðir minningatónleikar í gærkvöldi

Í gærkvöldi fóru fram tónleikarnir Tollur hafsins – minningartónleikar um fallna félaga en tónleikarnir voru haldnir til minningar um þá fjölmörgu sem farist hafa í sjóslysum. Mikið var lagt upp úr því að ná réttri stemmningu í salnum. Þannig voru kertaljós um salinn allan og tónlistin á rólegu og ljúfu nótunum að mestu leyti. (meira…)

Vigdís Hind syngur lag eftir Mika

Eyjar.net hafa fengið í hendurnar myndband með ungri söngkonu frá eyjum. Söngkona þessi heitir Vigdís Hind og er dóttir Gísla Foster og Ingibjargar Heiðdal. Vigdís Hind tók sjálf upp myndbrotið en samkvæmt heimasíðu Gísla http://fosterinn.blog.is þá finnst Vigdísi Hind gaman að taka upp alls kyns myndbrot á myndavél fjölskyldunnar. Þetta myndband útbjó hún þegar Vigdís […]

SSSól á Þréttándaballi í Höllinni

Nú er það orðið staðfest.að RISADANSLEIKUR verður haldin þann 6 janúar 2008 nánar tiltekið á Þrettándanum í Höllinni. Það er stórsveitin Síðan skein Sól með Helga Björns í broddi fylkingar sem mun trylla okkur Eyjaskeggja og halda uppi fjöri fram á nótt. Nokkuð er liðið frá síðustu heimsókn þeirra félaga úr SSSÓL og lofar stuðpinninn […]

Kjaftfullt á jólaballi

Jólagleðin náði hámarki í Hvíta húsinu á öðrum degi jóla þegar hljómsveitin SSSól steig á svið. Húsið var troðfullt af fólki en miðar á ballið seldust nánast upp í forsölu. Búast má við álíka fjölda á nýársnótt en þá spilar Bjórbandið og kántrísveitin Klaufar. Skoða myndir. (meira…)

Tveir frá ÍBV á æfingar hjá U-19 ára landsliðinu í knattspyrnu

Tveir leikmenn ÍBV hafa verið valdir til æfinga með U-19 ára landsliði karla í knattspyrnu. Þetta eru þeir Arnór Eyvar Ólafsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson en báðir léku þeir talsvert með ÍBV í sumar þrátt fyrir ungan aldur. Valdir voru tveir hópar og eru leikmennirnir samtals 56. Fyrrverandi þjálfari meistaraflokks ÍBV, Kristinn R. Jónsson er […]

Minnsta fækkun síðan 1993, en fækkun engu að síður

Stöðug fólksfækkun í Eyjum síðan 1991 er Vestamannaeyingum öllum mikið áhyggjuefni. Því er niðurstöðu Hagstofu Íslands um mannfjölda jafnan beðið með blöndu af spennu og kvíða. Undanfarin ár hafa verið okkur þungbær hvað þetta varðar. Til að mynda fækkaði Eyjamönnum um 100 í fyrra og 122 árið 2004. Því hefur aukin áhersla verið lögð á […]

Set styrkir knattspyrnumyndina

Á 52 ára afmælisdegi knattspyrnudeildar Umf. Selfoss, þann 15. desember sl., boðaði sögu- og minjanefnd deildarinnar til hátíðarfundar í Tíbrá. Þar voru sýnd brot úr heimildarmynd Matthíasar Sigurgeirssonar um sögu deildarinnar auk þess sem handsalað var samkomulag við Set sem er aðal kostunaraðili myndarinnar. (meira…)

Harpa �?sk íþróttamaður ársins

Íþróttamaður ársins 2007 í Skaftárhreppi var krýndur á Þorláksmessu við hátíðlega athöfn. Að þessu sinni varð Harpa Ósk Jóhannesdóttir, frjálsíþróttakona úr ungmennafélaginu Skafta, fyrir valinu. (meira…)

Sara Kristín með bestan árangur

Selfyssingurinn Sara Kristín Finnbogadóttir var verðlaunuð fyrir bestan heildarárangur stúdenta við brautskráningu í Fjölbrautaskóla Suðurlands í síðustu viku. Sara Kristín, sem útskrifaðist af náttúrufræðibraut, fékk sérstaka viðurkenningu skólanefndar auk námsstyrks frá Hollvarðasamtökum skólans. Alls brautskráðust 66 nemendur frá skólanum auk eins fyrrverandi nemanda sem lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. (meira…)

Skarst illa á fæti

Vélsleðamaður slasaðist þegar hann ók á vegg á sveitabæ í Grímsnesi síðdegis á öðrum degi jóla. Maðurinn slasaðist á fæti og skarst talsvert þegar hann fór með annan fótinn í gegnum rúðu. (meira…)

Alvöru jólaball á laugardag

Sigga Beinteins og Grétar Örvars leika undir dansi á jólaballi í Hvíta húsinu á Selfossi á laugardag. Þeir félagar Giljagaur og Stúfur hafa einnig lofað að mæta og dansa í kringum jólatréð með krökkunum. (meira…)

Kaupa hlut í Brörup Maskinhandel

Nýverið var gengið frá samningum um kaup Jötunn Véla á 30% eignarhlut í fyrirtækinu Brörup Maskinhandel á suður Jótlandi í Danmörku. Brörup Maskinhandel er eitt af elstu og best reknu vélasölufyrirtækjum í Danmörku, stofnað árið 1929 og hefur verið rekið með góðum hagnaði í mörg ár. Áætluð velta Brörup Maskinhandel árið 2008 er um 3 […]

Sunnlendingum fjölgar

Á vef Sambands sunnlenskra sveitarfélaga, www.sass.is er greint frá fjölda íbúa á Suðurlandi en Hagstofan gaf út tölur um íbúafjölda fyrir stuttu. Þar kemur fram að Sunnlendingum fjölagði um 561 á síðasta ári eða um 2,45%. Hins vegar fækkaði íbúum í Vestmannaeyjum um 35 eða úr 4075 í 4040. Íbúum í Vestmannaeyjum hefur hins vegar […]

Íbúum Vestmannaeyjabæjar fækkaði árið 2007

Samkvæmt nýútgefnum tölum frá Hagstofu Íslands þá hefur íbúum Vestmannaeyja fækkað um 35 á árinu. Í enda árs 2006 voru Vestmannaeyjingar 4075 en eru í dag með 4040 íbúa. Samkvæmt þessum tölum hefur íbúum Vestmannaeyja fækkað um 600 á 10 árum. Hérna má sjá íbúaþróun síðustu 10 ára: Vestmannaeyjar   1997 4.640 1998 4.594 1999 4.585 […]

Ekki hægt með réttu, eða góðri samvisku, að kalla þetta fjölskylduhátíð

Nýverið kom út bókin Öll trixin í bókinni þar sem Einar Bárðarson segir frá ýmsu því sem hann hefur lent í sem umboðsmaður og tónleikahaldari. Einar skipulagði fyrir nokkrum árum útihátíðina Eldborg og einnig kom hann að skipulagningu Galtalækjahátíðar árið 2006.Í bókinni segir Einar m.a. aðkomu sinni að Galtalækjarhátíðinni 2006 og kemur hann m.a. þetta. […]

Yður er í dag frelsari fæddur – eða var hann bara “endurfæddur” ?

Þessar upplýsingar skilja alla kristna menn eftir sem einfeldninga er trúa á staðlausa stafi því allan tímann var bara verið að fjalla um endurris sólarinnar á himni. Merkilegt að þessi uppristrú á sólinni skuli hafa orðið  til í þeim löndum þar sem skammdegis gætir ekki og varla sjónarmunur á sólarhæð hvort er um að ræða […]

Hugur okkar til komandi árs er jákvæður

Við á eyjar.net sendum út á nokkurn hóp eyjamanna tvær spurningar til að forvitnast hvernig árið 2007 hefði verið og hvort að einhverjar væntingar væri til ársins 2008. Elliði Vignisson bæjarstjóri var fyrstur til að svara og munum við birta svör þessara eyjamanna daglega næstu daga. Hvernig var árið 2007 fyrir þig og fjölskyldu þína?Árið […]

Lét Kára draga sig á snjóbretti

Flestir nota jólafríið sitt til að sinna þeim hugðarefnum sem öllu jöfnu sitja á hakanum í dagsins önn. Margir glugga í bækur, fara í göngutúra og sinna fjölskyldunni. Þessi ungi maður fór hins vegar aðra og heldur óhefðbundna leið til að hafa ofan af sér en hann þeystist um á snjóbretti í hlíðum Eldfells og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.