Góð veðurspá fyrir kvöldið

Samkvæmt veðurnetmiðlum er spá fyrir gamlárskvöld góð en gert er ráð fyrir suðaustan átt og úrkomulausu veðri í kvöld. Brenna verður við Hásteinsvöll í dag klukkan 17:00 og munu félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja sjá um flugeldasýninguna. (meira…)
Miðnæturbomban innkölluð

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur innkallað flugeld sem kallaður er Miðnæturbomban þar sem vart hefur orðið við galla í slíkum flugeldum. Miðnæturbomban er stór flugeldur sem hefur verið seldur fyrir þessi áramót á flugeldamörkuðum björgunarsveitanna. Er fólk sem hefur slíka flugelda undir höndum beðið um að skila þeim á sölustaði björgunarsveitanna. (meira…)
Búnaður fyrir 38 milljónir

Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum fékk góðar gjafir í fyrradag þegar velunnarar gáfu sjúkrarúm og tæki að andvirði um 38 milljóna króna. Athafnamaðurinn Bjarni Sighvatsson hafði veg og vanda að gjöfinni, en hann gekk á fund fyrirtækja og fékk þau í lið með sér við að styrkja spítalann. Auk þess kom kvenfélagið Líkn að gjöfinni, en félagskonur […]
Báðum ferðum Herjólfs aflýst vegna veðurs
Búið er að taka ákvörðun um að aflýsa síðari ferð Herjólfs í dag og siglir farþegaferjan því enga ferð í dag, 30. desember. (meira…)
Fyrri ferð Herjólfs aflýst

Herjólfur fór ekki fyrri ferð sína í morgun vegna óveðursins sem nú gengur yfir landið. Athuga átti stöðuna nú klukkan 12.00 en nú hefur verið tekin ákvörðun um að aflýsa fyrri ferð skipsins. Þá er athugun klukkan 15.00 með seinni ferð. (meira…)
Björgunarfélag Vestmannaeyja ræst út í nótt

Klukkan 03:49 í nótt fengu félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja óveðursútkall þar sem klæðning hafði losnað af húsnæði á Strembugötu. Um 20 meðlimir félagsins á útkallslista mættu þegar kallið kom og vel gekk að festa klæðninguna aftur. Félagar Björgunarfélagsins voru svo með vakt það sem af var nætur. Í samtali við eyjar.net sagði Adólf Þórsson […]
Fyrri ferð Herjólf aflýst

Herjólfur fór ekki frá Vestmannaeyjum í dag klukkan 08:15 eins og áætlun gerir ráð fyrir. Athugun með ferð Herjólf frá eyjum verður tekin kl 12:00. (meira…)
Stelpurnar unnu Áramótið

Það var mikið fjör í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í dag þegar Áramótið í knattspyrnu var haldið. Um var að ræða firmakeppni þar sem leikið var á handboltavelli og á handboltavöll. Eitt lið samanstóð eingöngu af ungum knattspyrnukonum og gerðu þær sér lítið fyrir og sigruðu mótið. (meira…)
Heildarupphæð gjafa á árinu yfir 40 milljónir

Í dag veitti starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum viðtöku þeim gjöfum sem stofnuninni hefur borist á árinu. Fyrir daginn í dag höfðu einstaklingar og félög gefi stofnuninni tæki og tól fyrir tæplega 29 milljónir króna og vó þar þyngst tölvusneiðmyndatæki sem Bjarni Sighvatsson og félagar gáfu í samstarfi við Kvenfélagið Líkn. Bjarni og fjölskylda hans bætti […]
Flottar myndir
Áramótin er tími uppgjöra. Þá lítur fólk yfir farinn veg, fyrirtæki gera upp sín mál og svo er að horfa til næsta árs. Hvernig skyldi það verða. – Hér eru nokkrar einstakar myndir sem teknar voru á árinu 2007. (meira…)
Öruggir flugeldar borga sig

Fyrir skömmu riðu þrjú óveður yfir landið á einni viku og þurftu fjölmargir landsmenn á aðstoð að halda af þeim sökum. En til hverra leitar almenningur á slíkum stundum? Til leikara og skemmtikrafta? Til bíla- og heildsala? Nei, því þegar hætta steðjar að treystir fólk á að björgunarsveitir komi til hjálpar, sem þær og gera.Nú […]
Flugeldasalan er undirstaðan í rekstri félagsins og alls starfs á þess vegum

Í gær opnaði flugeldamarkmaður Björgunarfélags Vestmannaeyja við Faxastíg en flugeldasalan er stærsta fjáröflun Björgunarfélagsins. Björgunarfélagið er öflugt félag á landsvísu en félagið á og rekur björgunarbátinn Þór sem er eitt alöflugast björgunarskip landsins. Rekstur félagsins er að stórum hluta byggður á flugeldasölunni og er hún undirstaðan í rekstri félagsins og tryggir Björgunarfélaginu þann búnað og […]
Margrét Lára hlýtur æðstu verðlaun íþróttamanna á Íslandi

Margrét Lára Viðarsdóttir var nú fyrir stundu útnefnd íþróttamaður ársins 2007. Viðurkenningin er mesti heiður sem íslenskum íþróttamanni hlotnast ár hvert og á Margrét Lára fyllilega skilið að vera íþróttamaður ársins. Margrét hefur undanfarin ár borið höfuð og herðar yfir aðrar knattspyrnukonur í landinu, skoraði t.d. 38 mörk í aðeins 14 leikjum með Val í […]
Margrét íþróttamaður ársins
Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona úr Val var í kvöld útnefnd íþróttamaður ársins 2007 af Samtökum íþróttafréttamanna. Margrét Lára, sem er 21 árs og fædd og uppalin í Vestmannaeyjum, er fjórða konan sem hlýtur þessa útnefningu á 52 árum. Hún setti nýtt markamet á Íslandsmótinu þegar hún skoraði 38 mörk fyrir Val, sló markamet A-landsliðsins og skoraði […]
Björgunarsveitir leituðu ferðamanns, sem reyndist staddur í Reykjavík
Hjálparsveit skáta í Hveragerði leitaði í dag ferðamanns á svæðinu í kringum Reykjadal. Félagi mannsins, sem tilkynnti að hans væri saknað, hafði ekki heyrt í honum frá því á þriðjudag, en þá var hann staddur í skála á svæðinu. (meira…)
Kaupmenn ánægðir

Verslun í Vestmannaeyjum gekk vel fyrir jólin og kaupmenn almennt ánægðir. Á Þorláksmessu var fullt út úr dyrum í verslunum bæjarins og fín stemmning. Lúðrasveit lék jólalög fyrir utan fallega skreyttar verslanir og jólasveinar voru á kreiki. Gréta Grétarsdóttir kaupmaður í Eyjavík og formaður Félags kaupsýslumanna sagði að verslun fyrir jólin hafi gengið mjög vel […]
Vestmannaeyjabær fær 18 milljónir og Sveitarfélagið �?lfus 6.5

Félagsmálaráðherra hefur ákveðið úthlutun á 250 milljónum króna til að koma til móts við þau sveitarfélög sem verða fyrir tekjumissi vegna tímabundins samdráttar í aflamarki þorsks. Fá Grindavík og Snæfellsbær mest í þetta skipti, rúmlega 35 milljónir króna hvort sveitarfélag. Vestmannaeyjabær fær 17.914.830 og Sveitarfélagið Ölfus 6.539.361. Mbl.is greindi frá. (meira…)
Áttum margrar ógleymanlegar stundir með vinum og fjölskyldum sem að eru fjársjóður okkar í lífinu.

Við á eyjar.net sendum út á nokkurn hóp eyjamanna tvær spurningar til að forvitnast hvernig árið 2007 hefði verið og hvort að einhverjar væntingar væri til ársins 2008. Í dag birtum við svör Vigdísar Rafnsdóttur. Hvernig var árið 2007 fyrir þig og fjölskyldu þína?Árið 2007 var með bestu árum sem ég hef lifað, margir merkir […]
Jói í Eyjatölvum tekur fram takkaskóna eftir 20 ára fjarveru

www.eyjar.net fengu í dag tölvupóst frá konu sem kallar sig Völvu og vildi hún koma eftirfarandi spádómi að fyrir árið 2008. Völvan hefur miklar og góðar gáfur í að sjá fram í tímann og hefur hún nýtt sér þetta fram til þessa til að sjá t.d. lottótölur og sigra í íþróttum, en árangurinn hefur samt sem […]
Verður Margrét Lára valin íþróttamaður ársins?

Í kvöld verður krýndur íþróttamaður ársins fyrir árið 2007. Eyjastúlkan Margrét Lára Viðarsdóttir er ein þeirra tíu sem til greina koma í valinu en hófið verður í beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins og hefst útsending klukkan 19:35. Þegar rennt er yfir þá tíu íþróttamenn sem urðu efstir í kjörinu kemur í ljós að fæstir hafa afrekað jafn […]