�?rettándagleði með hefðbundnu sniði

Þrettándagleði ÍBV-íþróttafélags hefst á Hánni klukkan 19.00 á morgun, laugardag en að þessu sinni fara hátíðahöldin fram 5. janúar, degi fyrr en venjulega. Hátíðahöldin verða með hefð­bundnu sniði. Bæjarbúar taka á móti jólasveinunum þegar þeir koma ofan af Molda og fylgja þeim upp á malarvöll þar sem kveikt verður í brennu og álfar og púkar […]

Gaujulundur, Skólalúðrasveitin, �?skar í Stór­höfða, Bókasafnið og Vosbúð hlutu styrki

Árleg úthlutun úr Styrktar- og menn­ingarsjóði Sparisjóðs Vest­manna­eyja, sem stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglunds­son fyrrverandi sparisjóðsstjóra, fór fram á dögunum. Er þetta í tutt­ugasta skiptið sem úthlutað er úr sjóðnum, en fyrsta úthlutunin var á Þorláksmessu árið 1988. Að þessu sinni hlutu styrkina Gaujulundur, Skóla­lúðrasveitin, Óskar Sigurðs­son vitavörður í Stórhöfða, Bóka­safn Vest­mannaeyja […]

Áhersla lögð á að viðhalda ógeðfelldri mynd arðræningja og kvótabraskara

Elliði Vignisson, bæjarstjóri hélt kröftuga ræðu við afhendinguna á Fréttapýramídanum sem fór fram á miðvikudaginn. Elliði sneri spjótum sínum m.a. að því umhverfi sem sjávarútvegsfyrirtækjum er búið og segir opinbera einkaaðila leggja áherslu að viðhalda ógeðfelldri mynd arðræningja og kvótabraskara. Þessi neikvæða ímynd hefur síðan stutt Alþingi í að beita sértækum skatti og álögum á […]

�?rjár frá ÍBV á U-16 ára landsliðsæfingar

Þrjár ungar og efnilegar handknattleiksstúlkur úr ÍBV, þær Vigdís Svavarsdóttir, Kataryna Hlynsdóttir og Rakel Hlynsdóttir, hafa verið kallaðar á æfingar hjá U-16 ára landsliði Íslands sem fara fram á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Alls voru 56 stúlkur valdar til að taka þátt í æfingunum og þurfa Eyjastúlkurnar því að sýna sitt allra besta strax á fyrstu […]

Herjólfur fer seinni ferð í dag

Herjólfur mun sigla síðari ferð dagsins en fyrri ferð skipsins var frestað í morgun vegna veðurs. Samkvæmt veðurspá á vind að lægja þegar líður á daginn en á hádegi var vindhraði 26 metrar á Stórhöfða. Ölduhæð við Surtsey var rúmir sjö metrar klukkan tíu í morgun. (meira…)

Kominn tími á nýja áskorun

Miðjumaðurinn Ian Jeffs hefur gert þriggja ára samning við Fylki en hann hefur verið lykilmaður hjá ÍBV undanfarin ár. „Þetta hefur tekið svolítinn tíma, að ganga frá öllu og ég er ánægður með að hafa klárað þetta og fundið félag sem vill mig og ég hlakka til að byrja,“ sagði Jeffs við Fótbolta.net í dag […]

�?rjú skip leita að loðnu

Þrjú skip fara til loðnuleitar í dag og áætlað er að hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson haldi úr höfn í sama tilgangi eftir helgi. Sjávarútvegsráðuneytið gaf út bráðabirgðaloðnukvóta í október uppá 205 þúsund tonn og þar af koma rúmlega 120 þúsund tonn í hlut íslenskra loðnuskipa. Aðalsteinn Jónsson fjölveiðiskip Eskju á Eskifirði leitaði að loðnu í desember […]

Golfmót í Vestmannaeyjum á miðjum vetri

Það er ekki víða á landinu sem hægt er að leika golf yfir jólahátíðina en kylfingar í Vestmannaeyjum stefna á heilt golfmót næstkomandi laugardag. Þá verður haldið Þrettándamót í golfi, þó svo að þrettándinn sé ekki fyrr en daginn eftir. Hins vegar hafa Þrettándahátíðarhöldin í Eyjum verið flutt fram á laugardag og golfmótið því líka. […]

Fór flugferð af brautarenda á fólksbíl

Um klukkan þrjú í nótt fékk lögreglan í Vestmannaeyjum tilkynningu um að fólksbíl hafi verið ekið fram af brautarenda flugvellinum í Vestmannaeyjum. Svo virðist sem bílnum hafi verið ekið eftir brautinni, líklega á mikilli ferð og að ökumanninum hafi ekki tekist að stöðva bílinn í tæka tíð. Því tók hann flugið út af brautinni sem […]

Slökkvilið Vestmannaeyja kallað 18 sinnum út á síðasta ári

Samkvæmt ársskýrslu Slökkviliðs Vestmannaeyja var liðið kallað 18 sinnum árið 2007. Í tólf tilfellum var liðið kallað út vegna bruna í íbúðarhúsi og í þrígang vegna bruna í iðnaðarhúsum. Þá var slökkviliðið einnig kallað út vegna elda í bílum, gámum og allskonar rusli, eins og segir í skýrslunni. Þá sér slökkviliðið um eldvarnareftirlit og voru […]

Ian Jeffs í Árbæinn

Fylkismenn hafa náð samkomulagi við enska knattspyrnumanninn Ian Jeffs um að ganga til liðs við Árbæjarliðið. Jeffs er samningsbundinn sænska úrvalsdeildarliðinu Örebro og á eitt ár eftir af þeim samningi en Hörður Antonsson, formaður meistaraflokksráðs Fylkis, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að samningaviðræður við Örebro um að losa Jeffs undan samningi væru langt […]

Pompey Norðursins í Eyjum frumkvöðull Icelandair árið 2007

Í dag var upplýst að Pompey norðursins, uppgröftur húsa sem fóru undir ösku í Heimaeyjargosinu 1973, er Frumkvöðull Icelandair árið 2007. Það var Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri sölu og markaðsdeildar sem afhenti viðurkenninguna í hófi sem Fréttir héldu vegna viðurkenninga sem þær veita. (meira…)

SSSól á �?rettándaball í Höllinni

Það verður stórsveitin SSSÓL sem mun halda uppi fjörinu á laugardagskvöld í Höllinni, öll leyfi eru komin í hús þannig að að Hallarmönnum er ekkert að vanbúnaði að skipuleggja stærðasta ball ársins. Heyrst hefur að Helgi Björns muni fara í humarveislu hjá Stjána á Emmunni og komi sér þannig í gírinn. Einnig er upp orðrómur […]

Fimm frá ÍBV á landsliðsæfingar

Fjórar stúlkur úr yngri flokkum handboltans hjá ÍBV og einn drengur hafa verið valdin á æfingar hjá landsliðum Íslands. Heiða Ingólfsdóttir, markvörður hefur verið valinn til æfinga hjá tveimur liðum, U-20 og U-18 ára. Þá voru þær Eva María Káradóttir, Dröfn Haraldsdóttir og Elísa Viðarsdóttir einnig valdar til að taka þátt í U-18 ára landsliðsæfingunum. […]

Gleðilegt ár

Eigendur www.eyjar.net óskar eyjamönnum nær og fjær gleðilegs árs og þakka fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða. Á næsta ári höldum við áfram uppbyggingu á eyjar.net og geta notendur gert ráð fyrir breytingum á næstu vikum á eyjar.net. Frá því að 24seven tók við rekstri eyjar.net hefur vefurinn stækkað og dafnað og er […]

Kærður fyrir akstur um borð í skipi

Lögreglan á Selfossi kærði ökumann um borð í Herjólfi í liðinni viku en maðurinn var að hagræða bifreið sinni í stæði um borð í skipinu. Reyndist maðurinn vera ökuréttindalaus en hann hafði verið sviptur ökuleyfi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er þetta í fyrsta skipti sem lögreglan á Selfossi kærir ökumann fyrir að aka bifreið sviptur […]

Fjölmenni í styrktarhlaupi Krabbameinssjúkra

Í morgun fór fram styrktarhlaup Krabbameinssjúkra en hlaupið var frá Stórhöfð og niður í Friðarhöfn þar sem hlauparanna beið veisla hjá Grími Kokki. Þrátt fyrir leiðindaveður og erfiða færð var þátttakan frábær en um 70 manns tóku þátt í hlaupinu, hlupu eða gengu leiðina niður í bæ. Þátttakendur greiddu 1500 krónur sem rennur óskert til […]

Helgafell best skreytta húsið í Vestmannaeyjum

Í dag afhenti Lions í Vestmannaeyjum og Hitaveita Suðurnesja viðurkenningu fyrir best skreytta húsið og best skreyttu götuna í Vestmannaeyjum. Þetta er í áttunda sinn sem þessi verðlaun eru veitt en best skreytta húsið að þessu sinni er Helgafell, sem stendur í hlíðum samnefnds fjalls. Þá var Bárustígur valin best skreytta gatan. (meira…)

Áramótaballið færist í Kiwanishúsið

Hinn árlegi áramótadansleikur, sem hljómsveitin Dans á Rósum stendur fyrir hefur verið færður úr Höllinni og í Kiwanishúsið. Ekki fékkst leyfi fyrir ballinu í Höllinni en reynt var fram á síðustu stundu og fékkst lokasvar nú rétt fyrir hádegi. Miðaverð á ballið í Kiwanis er aðeins 2000 kr., húsið opnar klukkan tvö eftir miðnætti og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.