Vaktin á leið inn í hvert hús í Eyjum

Nú er 1. tölublað Vaktarinnar á leið inn í hvert hús í Vestmannaeyjum en í blaði vikunnar er margt forvitnilegt lesefni. Vilhelm G. Kristinsson ræðir við Ragnar Guðmundsson, Ragga rakara sem nýverið seldi syni sínum, Viktori rekstur Rakarastofunnar en Raggi hyggst starfa áfram á stofunni við hlið sonarins. Leikfélag Vestmannaeyja ætlar að setja upp söngleikinn […]

Guðrún tekur við formennsku Samfylkingarfélags Vestmannaeyja

Á nýloknum stjórnarfundi Samfylkingarfélags Vestmannaeyja var Guðrún Erlingsdóttir kosin formaður félagsins í stað Björns Elíassonar. Samfylkingarfélag Vestmannaeyja hefur starfsemi árið 2008 með félagsfundi sunnudaginn 13. janúar í Höllinni kl. 18.30 -19.45. Kristján Möller, Björgvin G. Sigurðsson og Lúðvík Bergvinsson mæta til skrafs og ráðagerða við félagsmenn. Boðið verður uppá humarsúpu að hætti Gríms kokks. (meira…)

Frjálslyndir funda í kvöld

Frjálslyndi flokkurinn heldur opinn fund á Kaffi Kró í kvöld, fimmtudag en fundurinn hefst klukkan 20.00. Á fundinn mæta Grétar Mar Jónsson, alþingismaður, Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins og Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Kvenfélags Frjálslyndaflokksins. (meira…)

Töpuðu nokkuð örugglega gegn MK

Óhætt er að segja að lið Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum hafi ekki riðið feitum hesti frá viðureign sinni gegn Menntaskólanum í Kópavogi í spurningakeppninni Gettu betur í kvöld. Lokatölur urðu 33:8 MK í vil sem er því komið áfram 2. umferð en FÍV situr eftir. (meira…)

FÍV mætir MK í kvöld

Í kvöld, klukkan 21:00 mætir lið Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum liði Menntaskólans í Kópavogi í keppninni Gettu Betur á Rás 2. Útsending hefst klukkan 20:00 en um erfiða viðureign er að ræða fyrir Eyjamenn enda varð MK í öðru sæti í keppninni í fyrra. Um er að ræða fyrstu umferð keppninnar en tvær umferðir fara fram […]

sudurland.is VERÐUR sudurlandid.is

Allt er í heiminum hverfult. Þannig er því varið með fréttavefinn sudurland.is. Hann hefur skipt um nafn – nýja slóðin er sudurlandid.is. Eftir næstu helgi verður hún eingöngu í notkun. SUDURLANDID.IS (meira…)

Kveikt í bílhræum við Sorpu

Nú fyrir stundu var Slökkvilið Vestmannaeyja kallað að Sorpu þar sem eldur logaði í þremur bílhræjum. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í bílunum en slökkvistarf gekk vel og tjón lítið, enda bílarnir einungis brotajárn sem beið flutnings frá Eyjum. (meira…)

�?rjár knattspyrnustúlkur valdar á landsliðsæfingar

Þrjár ungar knattspyrnustúlkur úr ÍBV hafa verið valdar á úrtaksæfingar yngri landsliða Íslands í knattspyrnu. Þórhildur Ólafsdóttir er eini fulltrúi ÍBV í 26 stúlkna hópi U-19 ára landsliðsins en þær Kristín Erna Sigurlásdóttir og Birgitta Ósk Valdimarsdóttir hafa verið valdar í 26 stúlkna hóp U-17 ára landsliðsins. Æfingar beggja liða fara fram um helgina. (meira…)

Binni í Gröf

Mig langar að taka undir val þeirra á Fréttum um menn ársins í Vestmannaeyjum. Bjarni Sighvatsson, ásamt fleirum hefur unnið kraftaverk fyrir okkur öll í sambandi við endurnýjun og kaup á nýjum tækjum fyrir Sjúkrahús Vestmannaeyja og ber að þakka það. (meira…)

Skemmtanahald helgarinnar fór vel fram

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið enda töluverður fjöldi fólks að skemmta sér eins og fylgir þessum árstíma. Hins vegar fór skemmtanahaldið að mestu leiti vel fram. Ein líkamsárás var kærð til lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar en árásin átti sér stað í Höllinni aðfaranótt sl. sunnudags. Þarna hafði orðið […]

Félag Eldri borgara 20 ára

Félag Eldri borgara í Vestmannaeyjum fagnaði 20 ára afmæli sínu í dag, mánudag með veislu og púttkeppni í aðstöðu sinni í Ísfélagshúsinu. Um eitt hundrað manns mættu í veisluna, aðstaða félagsins fékk upplyftingu á dögunum en Ísfélag Vestmannaeyja gaf málningu svo hægt væri að mála salinn. (meira…)

Guðbjörg og félagar unnu

Frederikshavn Fox vann Álaborg 25-26 á útvelli í dönsku úrvalsdeildinni í gær.Guðbjörg Guðmannsdóttir stóð sig mjög vel með Frederikshavn Fox og skoraði 4 mörk. Frederikshavn Fox er neðst í deildinni ásamt Álaborg með 6 stig. (meira…)

Látum loga á jólaljósunum til 23. janúar

Goslokanefnd, sem fer með umsjón Goslokahátíðarinnar, hefur óskað eftir því að bæjarbúar láti jólaljósin loga áfram til 23. janúar næstkomandi. Á þeim degi, fyrir 35 árum hófst eldgos á Heimaey og verður þess minnst með svokallaðri Þakkargjörðarhátíð á þeim degi. Síðar í sumar verður svo hin eiginlega Goslokahátíð. (meira…)

Veglýsing ekki í umhverfismat

Umhverfisráðuneytið hefur fellt úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um að fyrirhuguð veglýsing á Þrengslavegi skuli háð mati á umhverfisáhrifum. (meira…)

Mikil gleði á fjölmennri �?rettándagleði

Jólin voru kvödd í gærkvöldi í Vestmannaeyjum, einum degi fyrr en venjulega. Það sló hins vegar ekkert á gleðina enda veðrið einstaklega gott sem gerir hátíðina enn skemmtilegri. Fjölmenni fylgdi jólasveinum og hyski þeirra til fjalla en líklega hafa um 3000 manns tekið þátt í gleðinni. Hægt er að skoða myndir Óskars Péturs Friðrikssonar, bæði […]

ÍBV hafði betur gegn KFS í gær

KFS tók á móti ÍBV í Íslandsmótinu í Futsal í gær í íþróttamiðstöðinni. Liðin höfðu áður mæst á sama stað, sem þá var heimaleikur ÍBV og endaði sá leikur með stórsigri ÍBV 11:4. KFS lék hins vegar mun betur í gær en tapaði þó 6:4. (meira…)

Skítalabbar í skemmdarverkum

Hún var ófögur sjónin sem blasti við eftirlitsmanni fasteigna Vestmannaeyjabæjar, þegar hann var á sinni venjubundu eftirlitsferð í morgun. Búið var að sprengja upp hurð á salerninu á Skansinum, – ekki nóg með það. Heldur hafði sprengju verið komið fyrir ofan í salerniskálinni með tilheyrandi skemmdum. (meira…)

Fyrsti Eyjamaðurinn fæddist á nýársdag

Fyrsta barnið sem kom í heiminn í Vestmannaeyjum árið 2008 lét ekki bíða eftir sér en það kom í heiminn á miðjum fyrsta degi ársins eða klukkan hálf fjögur 1. janúar. Um var að ræða stúlku sem var rúmlega 4 kg og 52 sentímetrar við fæðinguna. Foreldrar stúlkunnar eru þau Barbara Zielenda og Mariusz Przemyslaw […]

Samhugur og samstaða

Eitt megineinkenni uppgangstímabila í Vestmanna­eyjum er samhugur og samstaða. Má þar nefna til marks stofnun Bátaábyrgðarfélags Vestmannaeyja 1862, lagningu sæsímastrengs og bæjarlagnar 1911 og rafvæðingu skömmu síðar. Þá er glæsilegur vitnisburður um samtakamáttinn er Eyjamenn ­keyptu einir og sjálfir fyrsta björg­unar og varðskip Íslandinga 1920. Samstarf í bátakaupum og fiskvinnslu einkenndi meginhluta tuttugustu aldar. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.