Dala-Rafn VE 508 væntanlegur á morgun
Það verður ekki annað sagt, en að þrátt fyrir ýmsa erfiðleika sem steðja að íslenskum sjávarútvegi, sé útgerð og fiskvinnsla í Eyjum á mikilli siglingu. Bæði til lands og sjávar. Á morgun, föstudag er von á enn einu nýju skipi í flota Eyjamanna. Það eru hjónin Inga Eymundsdóttir og Þórður Rafn Sigurðsson sem eru að […]
Gunnar Jónsson hættir eftir 35 ára starf hjá Vestmannaeyjabæ

Á morgun föstudag hættir Gunnar Jónsson störfum hjá Vestmannaeyjabæ en Gunnar hefur starfað hjá Vestmannaeyjabæ frá árinu 1972. Af því tilefni bauð Vestmannaeyjabær til kaffisamsætis í gær þar sem Gunnari voru færðar gjafir og þakkir frá sveitarfélaginu og samstarfsfólki. Vestmannaeyjabær færði Gunnari þakklætisvott fyrir störf sín og afhenti Elliði Vignisson bæjarstjóri Gunnari málverk eftir Guðjón […]
White Christmas með Jingle Cats

Við höldum áfram með jólalag dagsins og í dag eru það mögnuð hljómsveit sem kallar sig Jingle Cats sem fær þann heiður að flytja jólalag dagsins. Jingle Cats færa okkur White Christmas og er ekki hægt að segja annað en að Jingle Cats geri lagið að sínu eins og Sigga Beinteins hefði orðað það. (meira…)
Notendavæn klámsíða fyrir blinda

„Þetta er frábær síða, þarna eru góðar hljóðupptökur, hægt er að stækka myndirnar mjög mikið og allt er notendavænt fyrir blinda,” segir Bergvin Oddsson, formaður ungmennahreyfingar Blindrafélagsins, um erótíska heimasíðu sem hentar blindum og sjónskertum vel. Bergvin segist hafa fengið upplýsingar um síðuna frá alþjóðafulltrúa blindra sem staddur var í Hollandi en á heimasíðu blindrasamtakanna […]
Hvað breytist á aðventunni

Á vefnum www.kirkjan.is er viðtal við séra Kristján Björnsson sóknarprest um helgihald yfir hátíðirnar í Vestmannaeyjum. Segir Kristján að takturinn breytist og sérstök áhersla sé lögð á sunnudagana og hrynjandin í aðventunni dregin fram. Jólatónleikar kórsins, kaffihúsamessa og ýmiskonar fræðsla um jólin eru meðal þess sem verður boðið upp á. Viðtalið við séra Kristján má […]
Hlyni gengur illa að finna styrktaraðila
Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum hefur Hlynur Sigmarsson, stjórnarmaður hjá HSÍ, fengið umboð frá þýska úrvalsdeildarfélaginu Flensburg til að halda leik félagsins gegn Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni hér á landi. Leikurinn mun fara fram hinn 2. febrúar næstkomandi og eigi draumur Hlyns að verða að raunveruleika þarf hann sárlega stuðning fyrirtækja eða fjársterkra […]
Torfusamtök ÍBV

Á laugardag kl. 10.00 ætla strákarnir í mfl. karla í handbolta, að ljúka frágangi á skurðum við Dalaveg fyrir Vélamiðstöðina. Þetta er gert í fjáröflunaskyni við handboltann, stjórn deidarinnar hvetur alla þá er vettlingi geta valdið, að hjálpa til og styðja þannig handboltastrákana í baráttunni í vetur. MÆTING VIÐ HELGAFELLSVÖLL KL. 10.00 (meira…)
Umsóknir um fjárhagsaðstoð eru á annan tug fyrir þessi jól

Fyrir hver jól er áberandi í fjölmiðlum starfs hjálparsamtaka sem aðstoða þá sem minn mega sín í samfélaginu. Jólin með öllum sínum hátíðleika eru kannski ekki jafn hátíðleg fyrir alla. Fjárhagur eða heimilisaðstæður eru mismunandi hjá fólki og sumir þurfa að leita sér aðstoðar til að ná að halda gleðilegri jól. Eyjar.net sendu nokkrar spurningar […]
Sorpstöð við Selfossflugvöll
Bæjarstjórn Árborgar áætlar 60 milljónir króna í uppbyggingu nýs gámasvæðis milli Selfossflugvallar og Eyravegs. Núverandi gámasvæðum sveitarfélagsins verður lokað þegar nýtt svæði verður tilbúið til notkunar. Byrjað verður að vinna að opnun þess á næsta ári. (meira…)
Tókst ekki að kaupa 35% í Vinnslustöð

Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Ísfélagsins, segir að meginástæða þess að kauprétturinn á bréfum Stillu hafi ekki verið nýttur sé sú að ekki hafi tekist að uppfylla meginskilyrði Ísfélagsins og Kristins ehf. um að auka hlutinn í Vinnslustöðinni í 35%, ekki aðeins að kaupa 32% hlut Stillu og tengdra félaga. „Við gerðum tilboð í hlut Lífeyrissjóðs […]
Félagsheimili í Flóahreppi skoðuð
Sveitarstjórn Flóahrepps hefur ákveðið að kaupa stjórnsýsluráðgjöf fyrir eina milljón króna til þess að skoða framtíðarhorfur félagsheimila í sveitarfélaginu. (meira…)
Heiðarlón minnkar um 30%
Meðal breytinga sem gerðar hafa verið á hönnun Heiðarlóns, ofan fyrirhugaðrar Urriðafossvirkjunar, er lækkun vatnsborðs um 1 m. Lónið verður þá í 50 m.y.s. Það og tilfærsla á stíflugörðum minnkar flatarmál lónsins úr 12,9 km2 í 9 km2. (meira…)
Nýta sér ekki kauprétt í Vinnslustöðinni
Ísfélag Vestmannaeyja hf. og Kristinn ehf. hafa ákveðið að hafna því að nýta sér kauprétt að eignarhlutum í Vinnslustöðinni hf., sem eru í eigu Stillu ehf. og tengdra félaga í eigu bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona. Gerður var kaupréttarsamningur 24. nóvember en frestur tilað nýta kaupréttinn var til kl. 16 í dag. Hlutur þeirra Guðmundar […]
Nýta sér ekki kauprétt í Vinnslustöðinni
Ísfélag Vestmannaeyja hf. og Kristinn ehf. hafa ákveðið að hafna því að nýta sér kauprétt að eignarhlutum í Vinnslustöðinni hf., sem eru í eigu Stillu ehf. og tengdra félaga í eigu bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona. Gerður var kaupréttarsamningur 24. nóvember en frestur til að nýta kaupréttinn var til kl. 16 í dag. (meira…)
Fylkir á netinu
Um síðustu helgi kom blaðið Fylkir út, efnismikið að venju. Þar er m.a. að finna myndir og uppýsingar um alla þá Vestmannaeyinga sem létust á árinu. Blaðið er nú komið á netið og hægt að skoða það með því að smella á forsíðu blaðsins til vinstri hér á síðunni. (meira…)
Knattspyrnumenn ársins úr Eyjum, hvað með framtíðina?

Það var gaman af því að knattspyrnumenn ársins, bæði í karla og kvennaflokki skyldu vera Eyjamenn. Hermann átti nafnbótina svo sannarlega skilið, enda búinn að standa sig gríðarlega vel, hvort sem það er með Charlton/Portsmouth eða íslenska landsliðinu. Sannarlega fyrirmynd. Margrét Lára ber höfuð og herðar yfir íslenskar knattspyrnukonur, slær markametið tvö ár í röð […]
Barnið í jötunni eftir Lýð Ægisson
www.eyjar.net hefur ákveðið að setja á síðuna eitt jólalag á hverjum degi fram að jólum. Í dag er það jólagið Barnið í jötunni eftir Lýð Ægisson. Lagið samdi Lýður í Vestmannaeyjum fyrir um 25 árum en textann samdi hann fyrir nokkrum vikum. Barnið í jötunni var sent en jólalagasamkeppni Rásar 2 en þetta er fyrsta […]
Fiskafli dregst saman milli ára

Fiskafli, á föstu verði, hefur dregist saman um 4,4 prósent það sem af er ári, miðað við sama tíma í fyrra. Fiskaflinn í nóvember jókst hins vegar um 1,7 prósent í síðasta mánuði, miðað við nóvember í fyrra, á föstu verði, að því er fram kemur í tölum Hagstofunnar. Þegar magn upp úr sjó er […]
Biðja þá sem eiga hljóðfæri að sækja þau í dag eða á morgun

Tryggingafélagið Sjóvá hefur yfirtekið húsnæðið þar sem fiskvinnslan Fiskiðjan var áður til húsa og húsið hefur verið kennt við síðan. Húsið brann sem kunnugt er í síðustu viku og er mjög illa farið. Í tilkynningu frá tryggingafélaginu, sem má lesa hér að neðan, eru þeir sem áttu muni í húsinu, beðnir um að fjarlægja þá […]
Hjalti Kristjánsson og Viðar Elíasson fá silfurmerki KSÍ

Áður en knattspyrnufólk ársins var kynnt á mánudagskvöld veitti Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, 77 einstaklingum heiðursmerki KSÍ fyrir frábær störf í þágu knattspyrnunnar á Íslandi. Alls hlutu 53 einstaklingar silfurmerki KSÍ og 24 hlutu gullmerki KSÍ. Frá Vestmannaeyjum fengu þeir Hjalti Kristjánsson og Viðar Elíasson silfurmerki KSÍ. Hjalti hefur undanfarin ár verið þjálfari og framkvæmdastjóri […]