Ljúfsár saga – skrifuð frá hjartanu

Fjölmiðlakonan og rithöfundurinn Edda Andrésdóttir sendi frá sér bókina Í öðru landi – Saga úr lífinu fyrir stuttu en í bókinni segir hún frá þeirri upplifun sinni að horfa á eftir föður sínum hverfa inn í óminnisland Alzheimers-sjúkdómsins, þaðan sem hann átti ekki afturkvæmt. Í myndskeiði hér fyrir neðan segir Edda frá því hvernig sagan […]

Er í einu besta liði Evrópu

Margrét Lára Viðarsdóttir hefur ekki ákveðið hvar hún muni spila sumarið 2008 en það dylst engum að það eru mörg stór erlend lið á eftir bestu knattspyrnukonu landsins. Daginn eftir að hún var kosin knattspyrnukona ársins annað árið í röð flaug hún til Indianapolis í Bandaríkjunum þar sem hún keppist um að vinna sér sæti […]

Eyjastemmning Egils

Eyjaflotinn er nú að tínast höfn fyrir jólin. Ýmist eru síldveiðiskipin búin með kvótann eða einfaldlega komin í jólafrí. Sama má segja með trollskipin, þau eru sum hver komin í jólafrí eða rétt ókomin. Egill Egilsson brá sér í kvöldgöngu í blíðunni og eins og oft lá leið hans niður að höfn. (meira…)

Bruni, óveður og átök

Það var í nógu að snúast hjá lögreglunni í vikunni sem leið og þá mest í kringum rannsókn á bruna í Fiskiðjunni og í kringum dansleik sem haldin var aðfaranótt sl. sunnudags í Týsheimilinu. (meira…)

Helstu verkefni lögreglu frá 10. til 17. desember 2007.

Það var í nógu að snúast hjá lögreglunni í vikunni sem leið og þá mest í kringum rannsókn á bruna í Fiskiðjunni og í kringum dansleik sem haldin var aðfaranótt sl. sunnudags í Týsheimilinu. Þá þurfti lögreglan að aðstoða fólk vegna óveðurs sem geisuðu hér í sl. viku en nokkuð var um að lausir munir […]

Bókmenntakvöld á Kaffi Kró í kvöld

Bókmenntakvöld verður á Kaffi Kró í kvöld og hefst klukkan 20.00 Kynntar verða mest seldu bækur bókaforlagsins Veraldar, Aska eftir Yrsu Sigurðardóttur og Guðni – af líf og sál eftir Guðna Ágústsson. (meira…)

Engin lán til kvótakaupa

Svo virðist sem bankarnir hafi lokað fyrir lánveitingar vegna kvótakaupa í þorski vegna þess að verð er talið of hátt, að því er Vilhjálmur Ólafsson hjá Viðskiptahúsinu sagði í samtali við nýjustu Fiskifréttir. Iðulega hafa komist á samningar milli kaupenda og seljenda í haust um verð á varanlegum heimildum en bankarnir hafa sent þá til […]

Jólafár eftir Stefán Þór Steindórsson

www.eyjar.net hefur ákveðið að setja á síðuna eitt jólalag á hverjum degi fram að jólum og í dag byrjum við á jólalagi eftir eyjamanninn Stefán Þór Steindórsson. Stefán setti nýverið á netið til spilunar jólalagið Jólafár en það er Stefán sem semur lag og texta lagsins. Lagið fjallar um það að það eru ekki allir […]

Pínleg misstök í jólastressinu

Já það var heldur en ekki pínleg staða sem ég lenti í fyrr í dag. Þannig er að ég hafði samið jólalag og langaði að deila því með nokkrum vel völdum einstaklingum sem ég þekki. Lagið er á myspace síðunni hjá Mekbuda og því auðvelt að senda bara link á alla á msn contact listanum […]

Aflaverðmæti jókst um 4 milljarða

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 62,3 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2007, samkvæmt heimildum Hagstofu Íslands samanborið við 58,3 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur eða 6,9% milli ára. Aflaverðmæti septembermánaðar var 4,3 milljarðar og lækkar um 1,6 milljarð frá september í fyrra. (meira…)

Þetta toppar endann á góðu ári

Margrét Lára Viðarsdóttir var í gær kjörin knattspyrnukona ársins hér á landi í þriðja sinn og annað árið í röð. Hún átti frábært ár með Val og landsliði Íslands og sló markamet með báðum liðum þrátt fyrir að vera ung að árum. ,,Ég átti alveg eins von á þessu en það voru þrjár frábærar knattspyrnukonur […]

Ekkert hægt að gera þegar hinn neglir hann inn af 25 metrunum

Created by PhotoWatermark Professional

Hermann Hreiðarsson leikmaður Portsmouth og íslenska landsliðsins var í gær valin knattspyrnumaður ársins 2007. Hermann átti gott tímabil með Charlton og Portsmouth en hann spilaði 5 landsleiki á árinu og var fyrirliði í fimm þeirra. ,,Það er gaman að fá viðurkenningar og þegar maður fær þær þá er maður líklega að gera eitthvað rétt,” sagði […]

Í jólaboð til ömmu bróður míns

Á stórhátíðum reynir á foreldra og þá skýrast fjölskyldutengslin upp sem hjá sumum eru orðin ansi flókin. Hvernig verður þetta hjá okkur um jólin?Nú þegar hin mikla fjölskylduhátíð nálgast standa yfir samningaviðræður í mörgum fjölskyldum um hvar börnin eigi að vera um jól og áramót. Hverjir ætla að vera hvar  á aðfangadag og hvernig umgengnin […]

Margrét Lára og Hermann knattspyrnufólk ársins

Nú síðdegis var tilkynnt um val KSÍ á knattspyrnumanni og -konu ársins. Eyjamenn geta svo sannarlega glaðst því viðurkenningarnar komu í hlut Eyjastúlkunnar Margrétar Láru Viðarsdóttur og Eyjapeyjans Hermanns Hreiðarssonar. Margrét Lára var valin annað árið í röð en hefur í allt hlotið viðurkenninguna þrívegis. Þetta er einnig í þriðja sinn sem Hermann er valinn […]

Margrét Lára og Hermann Hreiðarsson leikmenn ársins í knattspyrnu

Created by PhotoWatermark Professional

Fyrir stundu var tilkynnt um val á leikmönnum ársins 2007 í knattspyrnu. Í ár voru það eyjafólkið Hermann Hreiðarsson og Margrét Lára sem voru útnefnd sem knattspyrnumenn ársins. Báðir þessir leikmenn eiga frábært ár að baki og hafa staðið sig vel í þeim verkefnum sem að þau hafa tekið sér fyrir hendur. Árið hjá þessu […]

Ekki krafist áframhaldandi gæsluvarðhalds

Maðurinn sem hefur verið í gæsluvarðhaldi vegna brunans í Fiskiðjunni var látinn laus í dag. Ekki var krafist áframhaldandi gæsluvarðhalds en rannsókn málsins heldur áfram. Maðurinn neitar allri sök en hann var handtekinn á föstudagskvöld. Menn frá tæknideild ríkislögreglustjóra rannsökuðu vettvang í dag og sömuleiðis aðilar frá brunamálastofnun. (meira…)

Ekki áframhaldandi gæsluvarðhald vegna bruna í Eyjum

Ekki verður farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir karlmanni á þrítugsaldri sem grunaður eru um að hafa kveikt í húsnæði Fiskiðjunnar í Vestmannaeyjum fyrir helgi. Maðurinn var handtekinn á föstudag eftir í ljós kom að hann hefði verið í húsinu skömmu áður eldsins varð vart. Hann hefur hins vegar staðfastlega neitað því að hafa kveikt […]

Kannast ekki við skemmdir í Týsheimilinu

Eins og greint var frá hér á Eyjafréttum heilsuðust menn að sjómannasið á útskriftarballi FÍV á laugardag en ballið var haldið í Týsheimilinu. Heimildamaður vefsins greindi frá því að m.a. hefðu verið unnar smávægilegar skemmdir á húsinu en framkvæmdastjóri ÍBV-íþróttafélags, sem rekur húsið, kannast ekki við það. (meira…)

Grunnskólar í Suðurkjördæmi lægstir í öllum greinum

fjórða og sjöunda bekk. Námsmatsstofnun kynnti í dag niðurstöður úr samræmdum könnunarprófum 2007 en um 8 þúsund börn þreyttu prófin í ár, tæplega 4 þúsund í fjórða bekk og rúmlega fjögur þúsund í sjöunda bekk. Meðaltalið er lægst í öllum greinum í Suðurkjördæmi. (meira…)

Fiskiðjan

Sumarið 1974 vann ég í Fiskiðjunni í Vestmannaeyjum sem einhverjir þokkapiltar reyndu að kveikja í síðustu nótt. Þetta var árið eftir gos. Ég er ennþá montinn yfir því hvað ég var duglegur að vakna á morgnana. Maður þurfti að mæta klukkan sjö. Fór í vinnunna á pallbíl Stebba Ungverja sem bjó á næsta bæ við […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.