Það var gaman af því að knattspyrnumenn ársins, bæði í karla og kvennaflokki skyldu vera Eyjamenn. Hermann átti nafnbótina svo sannarlega skilið, enda búinn að standa sig gríðarlega vel, hvort sem það er með Charlton/Portsmouth eða íslenska landsliðinu. Sannarlega fyrirmynd. Margrét Lára ber höfuð og herðar yfir íslenskar knattspyrnukonur, slær markametið tvö ár í röð í efstu deild og hefur raðað inn mörkum með landsliðinu.
Ég held að ég sé eins og margir aðrir Eyjamenn. Við fylgjumst með hvernig „okkar fólki” gengur þó þau séu farin í annað lið. Við erum stolt af árangri þeirra. Jafnvel montin.
Ég tók að gamni mínu saman hvaða leikmenn hafa spilað A-landsleiki frá 1980 og farið út í atvinnumennsku. ÍBV á þar sjö leikmenn. Eru í þriðja sæti yfir liðin. Aðeins ÍA og KR eiga fleiri atvinnumenn á þessu tímabili. Valur á jafnmarga en fyrir neðan ÍBV eru lið eins og Fram, Keflavík, Breiðablik, FH, Fylkir, Grindavík, Stjarnan, Víkingur og Þór Akureyri.
Þessir sjö leikmenn eru: Títtnefndur Hermann Hreiðarsson, Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Tryggvi Guðmundsson, Hlynur Stefánsson, Örn Óskarsson, Ívar Ingimarsson og Sverrir Sverrisson sem var áður með Leiftri. Svo fór Birkir Kristinsson í atvinnumennsku frá Fram en hann ólst hér upp og fékk sitt knattspyrnulega uppeldi í Eyjum. Fleiri snillingar hafa komið frá Eyjum og of langt mál að telja það upp hér en mergur málsins er sá að það hefur verið gott að fá sitt íþróttauppeldi í Eyjum.
Nú eru uppi hugmyndir um að fresta byggingu knattspyrnuhúss. Fresta því um eitt ár og fá fjármagn inn í ÍBV til að mæta erfiðum rekstri. Það er vitað mál að reksturinn er erfiður og ekkert einhverju einu um að kenna. Óþarfi að fara í hártoganir um slíkt.
Ég hef fulla samúð með stjórnarmönnum hjá ÍBV sem þurfa að mæta þessum rekstri og finna leiðir en mín skoðun er sú að þetta er ekki rétta leiðin. Knattspyrnuhúsið á að rísa.
Aðstaðan er gríðarlega mikilvæg. Þegar Hemmi Hreiðars, Tryggvi, Venni, Bjarnólfur og fleiri snillingar voru að alast upp í Eyjum litu önnur lið öfundaraugum til Eyja. Hér voru fjórir grasvellir og aðstaðan sú besta á landinu. Síðan höfum við dregist aftur úr. Knattspyrnuhús hafa risið víða og öll lið utan tvö að ég held í efstu tveimur deildunum á Íslandi (24 lið) hafa æfingaaðstöðu í knattspyrnuhúsum.
Við sitjum orðið eftir. Það er staðreynd. Hemmi Hreiðars framtíðarinnar, Margrét Lára næstu kynslóðar hafa ekki aðstöðu til að taka framförum líkt og jafnaldrar þeirra. Auðvitað stendur ekki allt og fellur með húsinu en það hefur mikil áhrif. Krakkar hafa aðstöðu til að vera í handbolta og körfubolta allt árið. Ekki fótbolta. Í dag eru fótboltaæfingar allan ársins hring.
Umræðan hefur verið fjörug á heimasíðu ÍBV og þar sýnist sitt hverjum. Eins var góður pistill frá Kela, en hann tók skóflustunguna að nýju húsi síðasta haust. Sú athöfn vakti athygli og menn urðu bjartsýnir fyrir hönd knattspyrnunnar.
Knattspyrnuhúsið er ekki byggt fyrir meistaraflokk. Húsið er fyrst og fremst byggt fyrir börnin okkar. Þar eru Hemmi og Margrét Lára framtíðarinnar.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.