Keppnin hafin í íslensku sumarveðri

Keppni í sveitakeppni í golfi, 1. deild hófst á golfvellinum í Vestmannaeyjum í morgun. Keppnin hefst í alíslensku sumarveðri, rigningu og vindi en spáin er reyndar mjög góð fyrir helgina. Golfklúbbur Vestmannaeyja fer vel af stað en þeir Þorsteinn Hallgrímsson og Rúnar Karlsson unnu fyrstu holuna gegn Golfklúbbi Suðurnesja. Mótinu lýkur svo rétt eftir hádegi […]
Selfoss marði ÍH

Selfyssingar sitja nú í 2. sæti 2. deildar karla í knattspyrnu eftir sigur á ÍH á Selfossvelli í kvöld. Sigurinn var torsóttur þar sem heimamenn féllu niður á plan gestanna og spiluðu ekki hrífandi knattspyrnu. Lokatölur voru 3-2 og kom sigurmarkið úr vítaspyrnu. (meira…)
Uppgjör Þjóðhátíðar

Þá er minni tuttugustu og sjöundu þjóðhátíð lokið. Svei mér þá en þegar ég vaknaði um hádegið á sunnudegi þá hélt ég því fram að ég væri orðinn of gamall í þetta. En mánudagurinn afsannaði þá kenningu og var ég gjörsamlega stálsleginn og ánægður eftir frábæra helgi. Fékk mér meira að segja 1 bjór við […]
Fyrsti leikur eftir Þjóðhátíð: Stjarnan-ÍBV á morgun

Fyrsti leikur eftir Þjóðhátíð verður á morgun er lið ÍBV heimsækir Stjörnumenn í Garðabæinn. Lið ÍBV situr sem fyrr í 5. sæti deildarinnar, er nú með 23 stig. Stjarnan er einu sæti neðar með 16 stig og hafa forráðamenn liðsins líklegast gert ráð fyrir betra gengi í sumar en raun ber vitni. Í síðustu þremur […]
Tryggvi orðinn markahæstur

Tryggvi Guðmundsson varð í gær markahæsti leikmaður íslensks liðs í Evrópukeppnum frá upphafi. Markið sem Tryggvi skoraði í gær var hans sjötta í Evrópukeppni en fyrir leikinn höfðu hann og fjórir aðrir skorað fimm mörk í Evrópu. (meira…)
Spjallþráður fyrir Vestmannaeyjar

Opnað hefur verið spjallborð á www.eyjar.net þar sem eyjamönnum nær og fjær gefst kostur á því að láta gamminn geysa og ræða þau mál sem liggja þeim á hjarta eða bara spjalla til gamans. Markmið með þessu spjallborði er að búa til samfélag á netinu þar sem hægt er að ræða málin á málefnalegum og uppbyggilegum […]
Tryggvi orðinn markahæstur
Tryggvi Guðmundsson varð í gær markahæsti leikmaður íslensks liðs í Evrópukeppnum frá upphafi. Markið sem Tryggvi skoraði í gær var hans sjötta í Evrópukeppni en fyrir leikinn höfðu hann og fjórir aðrir skorað fimm mörk í Evrópu. Áður áttu metið með Tryggva þeir Hermann Gunnarsson (Valur 5), Mihajlo Bibercic (KR 4, ÍA 1), Ríkharður Daðason […]
Afar lítið um þoku í Vestmannaeyjum í sumar

Að þessu sinni þurftu Vestmannaeyingar ekki að hafa áhyggjur af þoku í kring um Þjóðhátíð. Ég tók eftir því að í dag kl. 15 var komin þoka á Stórhöfða, gamall kunningi sem nánast hefur ekki sést á þessum slóðum þetta sumarið. Við frekari eftirgrennslan var síðast þoka í Eyjum um miðjan daginn (kl 12 eða […]
Sléttusöngur og varðeldur á Selfossi
Hinn rómaði sléttusöngur verður sunginn á sléttunni við Gesthús á Selfossi laugardaginn 11. ágúst. Áætlað er að hann hefjist kl. 21:00. Kveiktur verður varðeldur og flugeldasýning haldin þegar skyggja tekur og verður hún í höndum Björgunarfélags Árborgar. Fólk er hvatt til að fjölmenna með hljóðfæri sín og söngbækur og taka vel undir. (meira…)
Næturlífið á Suðurlandi

Þorlákshöfn er pleisið til að vera í þessa helgina með tónlistaruppákomum frá fimmtudegi til sunnudags. (meira…)
25 ára afmælisferð

Þann 15, október nk. eru 25 ár liðin frá stofnun Arsenalklúbbsins á Íslandi en hann var stofnaður á Selfossi af tveimur ungum mönnum. Af þessu tilefni ætla Arsenalaðdáendur af Suðurlandi að fjölmenna í afmælisferð sem farin verður föstudaginn 19. október. (meira…)
Hundafangari óskast

Bláskógabyggð auglýsir eftir hundafangara og samstarfsaðila til reksturs hundabyrgis, fyrir þá hunda sem eru handsamaðir í sveitarfélaginu. Margeir Ingólfsson oddviti segir að verið sé að skerpa línurnar í hundaeftirliti í þéttbýli. (meira…)
Nýtt hverfi við Selfoss

Nýtt íbúahverfi mun rísa í landi Dísarstaða, sunnan Langholts á Selfossi, á næstu árum. Gert er ráð fyrir 374 íbúðum og mun gatnagerð fara af stað á næstu dögum, segir Hannes Þór Ottesen, framkvæmdastjóri Engjalands ehf. sem annast framkvæmdina. (meira…)
Meistaradeildin um helgina

Meistaradeild Olís og Umf. Selfoss í 5. flokki karla verður haldin um helgina á Selfossvelli. Þetta er þriðja árið í röð sem mótið er haldið. Mótsblaðið fylgir með Sunnlenska í þessari viku. (meira…)
Myndbönd frá Þjóðhátíð 2007

Eru byrjuð að streyma úr öllum áttum inn á http://www.youtube.com/. Fremstir þar í flokki eru hinir uppatækjasömu Vinir Ketils Bónda og hafa þeir sett inn þó nokkur myndbönd sem hægt er að skoða hér. http://www.youtube.com/profile?user=vinirketils Ef áhugi er fyrir að skoða myndbönd frá öðrum þarf einungis að skrifa inn “Þjóðhátíð” í leitarvélinni á http://www.youtube.com/ (meira…)
Hátíðir um víðan völl

Glatt verður á hjalla víða um Suðurland um helgina en hátíðir eru haldnar bæði í Grímsnes- og Grafningshreppi og í Ölfusinu. (meira…)
Árlegri rannsókn Hafrannsóknastofnunarinnar á sandsíli lokið

Þann 21. júlí síðastliðinn lauk tveggja vikna leiðangri á Gæfu VE 11. Farið var á 4 svæði, Breiðafjörð, Faxaflóa, Vestmannaeyjar – Vík og Ingólfshöfða. Togað var með flottrolli frá yfirborði og niður á botn. Einnig var notaður plógur til að ná í síli úr botni þegar síli var ekki aðgengilegt í troll. Þetta er annað […]
Talsvert meira fannst af seiðum frá því í vor en í fyrra
Lokið er tveggja vikna leiðangri á Gæfu VE 11 þar sem farið var á fjögur svæði, Breiðafjörð, Faxaflóa, Vestmannaeyjar – Vík og Ingólfshöfða.Þetta kemur fram í frétt frá Hafrannsóknastofnun. (meira…)
�?jóðhátíðin mun lifa, hún er byggð á 130 ára hefð
Ómar Ragnarsson bloggaði um útihátíðir um verslunarmannahelgina. Á þeim hefur hann sterkar skoðanir og spáir í framtíðina. Hann segir m.a.: Útihátíðir í gamla stílnum hafa hopað, – sú var tíðin að 10 þúsund manns voru í Húsafellsskógi, Atlavík og í Galtalækjarskógi. Galtalækjarhátíðin þraukaði lengst, – fyrsta embættisverk núverandi forseta Íslands var að koma þangað 1996 […]
Ný Bergey VE lagði af stað frá Póllandi í morgun

Nýtt skip Bergs-Hugins, Bergey VE 544 lagði af stað frá Póllandi til Íslands klukkan 11.44 í morgun að staðartíma. Er skipið væntanlegt til heimahafnar í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn gangi allt að óskum. „Þetta er glæsilegt skip og það var stór stund þegar Bergey lagði af stað heim á leið,“ sagði Magnús Kristinsson útgerðarmaður sem var […]