Fréttir frá Eyjum á Vaktin.net

Frá og með deginum í dag færast fréttir tengdar Vestmannaeyjum og fréttablaðinu Vaktinni af eyjar.net yfir á www.vaktin.net. Er þetta gert til að skapa meiri tengsl á milli fréttablaðsins Vaktarinnar og netmiðils. Á fréttavefnum www.vaktin.net verður að finna fréttir og upplýsingar um allt það helsta sem er að gerast í Vestmannaeyjum. (meira…)
Fyrstu Þjóðhátíðargestir mættir
Nokkur ölvun var í Vestmannaeyjum í gærkvöldi, en engin vandamál hlutust af. Fyrstu þjóðhátíðargestir eru mættir, segir lögreglan í Eyjum. Lögregla hafði fregnir af ríg vegna tjaldstæða á hátíðarsvæðinu en hafði ekki afskipti af því. (meira…)
Steingrímur með þrennu á gamla heimavellinum
KFS vann afar mikilvægan sigur á Árborg í gærkvöldi en leikur liðanna fór fram á Hásteinsvellinum. Lokatölur urðu 5:2 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 2:1 fyrir Eyjamenn. Steingrímur Jóhannesson fór mikinn í liði KFS en hann skoraði þrennu í leiknum og kunni greinilega vel við sig á sínum gamla heimavelli enda skoraði hann […]
Stuðmenn fóru með björgunarbátnum Þór

Einar Örn Jónsson tónlistarmaður og meðlimur hljómsveitarinnar Í Svörtum Fötum er að koma á sína áttundu þjóðhátíð en hann hefur spilað á fimm þjóðhátíðum og verið sem almennur þjóðhátíðargestur á tveimur. Eyjar.net sendu Einari nokkrar spurningar varðandi hans hlið á þjóðhátíðinni. Afhverju þjóðhátíð í eyjum? Einstök hátíð á einstökum stað, auk þess sem það er […]
Það er tvennt sem þjóðhátíðarnefnd ræður ekki við

Fyrr í kvöld birti eyjar.net frétt um þjófstart í merkingu fyrir þjóðhátíðartjöld í Herjólfsdal og hafði þá fyrr um kvöldið mikill fjöldi eyjamanna mætt í Herjólfsdal til að ná sér í góða staðsetningu fyrir komandi helgi.Í þeirri frétt kom fram að tjöldun yrði leyfð klukkan 13:00 fimmtudag, en rétt fyrir 23:00 byrjaði fjörið á ný […]
Árni Johnsen ítrekað misst stjórn á sér og sýnt dómgreindarskort segir Þjóðhátíðarnefnd

Þjóðhátíðarnefnd í Vestmannaeyjum treysti sér ekki til að bera ábyrgð á Árna Johnsen sem kynni á hátíðinni. Nefndin segir það vera vegna þess að hann hafi ítrekað misst stjórn á sér og sýnt dómgreindarskort í þeim störfum. Árni Johnsen segir í viðtali í Þjóðhátíðarblaðinu, sem kom út í dag, að hann sé ósáttur við hvernig […]
Samgöngumál (hversvegna vill ég frekar nýtt, gangmeira skip, frekar en Bakkafjöru?)

Þegar umræðan um Bakkafjöru hófst, þá var ég sem sjómaður mjög efins um möguleikana á að gera þarna höfn. Ég hef nú stundað sjóinn við Vestmannaeyjar í 20 ár og oftsinnis verið á veiðum inni í Bakkafjöru, bæði fyrir utan og innan rif. Fyrsta tilfinning mín var sú, að þessi hugmynd væri nánast fáranleg, en […]
Þjófstartað í tjöldun

Í kvöld barst það um Heimaey að fólk væri mætt í Herjólfsdal að merkja sér stæði fyrir þjóðhátíðartjöldin. Eins og flestir vita er ekki sama hvar sumir tjalda sínu tjaldi og eiga margir sinn fasta stað og því mikilvægt að ná að merkja sér stað sem fyrst. Gamlir Þórarar vilja síður lenda á Týsgötu og […]
Fjölskylduhátíð þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.

Yfir þjóðhátíðina er það markmið eyjar.net að setja eins fljótt og mögulegt er video og ljósmyndir af hátíðinni. Í dag birtum við viðtal við Tryggva Má Sæmundsson og ræddum við hann stuttlega um þjóðhátíðina í ár. Videoviðtalið við Tryggva Má (meira…)
Vegagerðargirðing á fjöllum
Þeir sem ganga á Ingólfsfjall hafa margir veitt athygli rafmagnsgirðingu sem gengur eftir fjallinu endilöngu. Um er að ræða þjóðvegagirðingu Vegagerðarinnar sem sett er til að sporna við fé við þjóðveg 1. (meira…)
Lindarvatn úr Eyjafjöllum uppistaðan í vestmannaeyskum bjór

Lindarvatn úr Eyjafjöllunum verður uppistaðan í nýjum íslenskum bjór, framleiddum í Vestmannaeyjum, ef hugmyndir um bjórverksmiðju í Eyjum verða að veruleika. Með tilkomu Bakkafjöru lækkar flutningskostnaður bjórsins uppá fastalandið til muna.Athafnamennirnir Björgvin Þór Rúnarsson og Birgir Nielsen hafa stofnað Íslenska bjórfélagið. Fjármögnun bjórverksmiðju í Vestmannaeyjum er á lokastigi, og vona félagarnir að þeir geti hafið […]
Þjóðhátíðargestir byrjaðir að streyma til eyja.

Þó svo að þjóðhátíðin byrji ekki formlega fyrr en á föstudag þá eru þjóðhátíðargestir byrjaðir að streyma til eyja. Í dag komu tvær Fokker 50 sæta vélar frá Reykjavíkur með farþegar frá Flugfélagi Íslands, Herjólfur siglir með um 800 farþega í dag og Flugfélag Vestmannaeyja er með loftbrú milli eyja og bakka. Hjá Hannesi Kristni Sigurðssyni […]
Lundinn er að bera út eggin

Marinó Sigursteinsson, pípulagningameistari hefur undanfarin ár notað skolpmyndavél sína til að mynda lundaholur. Síðan 2002 hefur hann myndað lundaholurnar frá því að pysjan klekst út en í ár byrjaði hann fyrr, í samstarfi við starfsmenn Náttúrustofu Suðurlands. Allar upplýsingar úr þessum könnunum eru skráðar og eru niðurstöðurnar afar athyglisverðar. (meira…)
Lögreglan í Vestmannaeyjum minnir á útivistarreglur um börn

Í tilefni Þjóðhátíðar um næstu helgi vill lögreglan minna foreldra og forráðamenn barna á að útivistareglurnar gilda jafnt um Þjóðhátíðarhelgina sem aðra daga ársins. Það hefur verið reynsla lögreglunnar að mörg ungmenni byrja að neyta áfengis og annarra vímuefna á Þjóðhátíð og því vill lögreglan hvetja foreldra og forráðamenn til að ræða við börn sín […]
Nýir eigendur www.eyjar.net

24seven ehf hefur keypt www.eyjar.net. Tilgangur kaupanna er að lyfta síðunni á hærra plan og auka enn frekar á vinsældir hennar með ýmsum breytingum. Þeim verður flestum lokið um miðjan september. Markmið okkar er að fara nýjar leiðir og reyna að útbúa vef sem Eyjamenn nær og fjær geti notað sér til ánægju og yndisauka […]
Gunnar Heiðar skoraði gegn Real

Gunnar Heiðar Þorvaldsson lét að sér kveða í æfingaleik í gær með þýska liðinu Hannover sem tók á móti spænska meistaraliðinu Real Madrid í Þýskalandi. Landsliðsframherjinn kom inná sem varamaður í síðari hálfleik þegar þýska liðið var marki undir og skoraði Gunnar annað mark leiksins á 63. mínútu. Vestmannaeyingurinn hafði aðeins verið inni á vellinum […]
Þroskahefti kemur út í kvöld

VKB tilkynnir að Þroskahefti version 3,0 kemur út í dag miðvikudaginn 1.ágúst Munu félagsmenn og meðhjálparar bera út blaðið í öll hús í Vestmannaeyjum í kvöld og vonum við að sem flestir taki vel á móti blaðberum með brandara, bjór eða samloku með baunasalati. Einnig vilja VKB nýta þetta tækifæri og óska eyjamönnum nær og fjær […]
Gunnar skoraði gegn Real Madrid
Gunnar Heiðar Þorvaldsson lét að sér kveða í æfingaleik í gær með þýska liðinu Hannover sem tók á móti spænska meistaraliðinu Real Madrid í Þýskalandi. Landsliðsframherjinn kom inná sem varamaður í síðari hálfleik þegar þýska liðið var marki undir og skoraði Gunnar annað mark leiksins á 63. mínútu. Vestmannaeyingurinn hafði aðeins verið inni á vellinum […]
Björgunarfélag Vestmannaeyja ræst út í kvöld
Félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja voru ræstir út í kvöld vegna veðurs við Þórsheimilið En við hið nýja tjaldstæði voru fellihýsi farin að fjúka og fóru félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja á staðinn og aðstoðuðu gesti tjaldstæðisins. (meira…)
2 sólahringar, 21 klukkustund og 24 mínútur

Ég gef nú lítið fyrir þessar heimsenda spár hans Sigga Storms. Minnist þess nú bara að hann spáði hitabylgju fyrir síðustu Þjóðhátíð. Er það reyndar sérstaklega minnisstætt, þar sem ég notaði það til þess að byrja ræðuna sem ég neyddist til að halda við vígslu Vitans í fyrra. Byrjaði á að bjóða alla velkomna í […]