Tvö stór myndverk afhjúpuð við Sundlaug Stokkseyrar

Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri afhjúpaði í gær tvö stór myndverk í sundlaugargarðinum í Sundlaug Stokkseyrar sem börn í BES teiknuðu máluðu. Ætlunin er að vinna sex myndir alls og eru þetta því tvær fyrstu í syrpunni. Aldrei að vita nema Fribbi froskur og Kobbi kútur mæti á svæðið, taki lagið og skemmti viðstöddum. (meira…)
Hafa lokað fyrir umferð að Hellisheiðarvirkjun

Mótmælendur frá Saving Iceland hafa lokað fyrir umferð að Hellisheiðarvirkjun með því að hlekkja sig saman og við bíla. Þetta kemur fram á mbl.is og sagt að samtökin séu með þessu að mótmæla stækkun virkjunarinnar, óheiðarlegum viðskiptaháttum Orkuveitu Reykjavíkur og tengslum hennar við stríðsrekstur. (meira…)
eftir því að þú

hvorki milli lands og Eyja né annarstaðar. Virðingarfyllst Elliði Vignisson (meira…)
Vestmanneyjabæ gert að greiða eiganda �?ndvegisrétta 2 milljónir
Í Héraðsdómi Suðurlands í dag var Vestmannaeyjabæ gert að greiða fyrrum eiganda matvælaverksmiðjunnar Öndvegisrétta rúmar 2 millljónir króna vegna útlagðs kostnaðar. Þetta kemur fram á visir.is. (meira…)
Hagnaður Vinnslustöðvarinnar 1116 milljónir
Hagnaður Vinnslustöðvarinnar á fyrri helmingi ársins nam 1.116 milljónum króna. Er þetta mikill viðsnúningur frá sama tímabili 2006 þegar tap varð á rekstrinum uppá 493 milljónir króna. (meira…)
Nú er ég búin að eyðileggja allt fyrir konunum
Gönguhópur frá Vestmannaeyjum var á Hornströndum um síðustu helgi og var á göngu í snarbrattri hlíð í Miðfelli þegar Hjördís Kristinsdóttir féll 30 til 40 metra og viðbeinsbrotnaði. Mikil mildi var að ekki fór verr en Hjördís var flutt með varðskipi til Ísafjarðar þar sem hún fékk aðhlynningu. Díana Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, fylgdi henni til Ísafjarðar […]
Fórnarlömbunum loks sýnd tilhlýðileg virðing

Ekki hefur fórnarlömbum Tyrkjaránsins í Vestmannaeyjum 1627 áður verið sýndur meiri sómi en í síðustu viku þegar haldnir voru Minningardagar um Tyrkjaránið, sem stóðu frá sunnudegi til miðvikudags. Það var Félag um Tyrkjaránssetur sem skipulagði dagskrána sem var fjölbreytt og vönduð. Hún samanstóð af fróðleik og táknrænum athöfnum sem lauk með kertafleytingu á miðvikudagskvöldið. Þar […]
Barátta harðnar við �?jórsá

Unnendur Þjórsár bæði í Árnes- og Rangárvallasýslu fagna einlæglega velvilja og stefnufestu Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra í baráttunni við að verja Þjórsá. (meira…)
Vestmannaeyjagöng kosta 50 til 80 milljarða króna

Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. hefur lokið mati á kostnaði við gerð jarðganga sem vegtengingu milli Vestmannaeyja og Landeyja. Niðurstaða matsins er sú að tæknilega sé mögulegt að gera slík göng og að kostnaðurinn verði líklega á bilinu 50 til 80 milljarðar króna eftir gerð ganganna en áhætta er talin mikil. (meira…)
Varað við vegaframkvæmdum

Rétt við Vík í Mýrdal er unnið að vegaframkvæmdum á þjóðveginum sem hafa valdið ökumönnum óþægindum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. (meira…)
Með óskráðan vagn í lögreglufylgd
Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði í síðustu viku ökumann vörubifreiðar fyrir að vera með óskráðan hengivagn í eftirdragi. Var hann látinn snúa við áleiðis á Selfoss í lögreglufylgd þar sem hann var látinn fara með vagninn á skoðunarstofu til skráningar. (meira…)
Stútarnir teknir úr umferð

Þeir ökumenn sem fóru frá Kirkjubæjarklaustri á Hvolsvöll eftir miðnætti á laugardag þurftu þrívegis að stöðva á lögreglutálmum, þar sem verið var að mæla vínandamagn í ökumönnum. Lögreglan á Hvolsvelli segir þetta lið í auknu umferðareftirliti og skilaði það sér á laugardag; einn ofurölvi undir stýri var gripinn glóðvolgur. (meira…)
Bjarnareyingar klífa Einidrang

Einidrangur er vestasta skerið í Vestmannaeyjaklasanum og stendur eitt og sér, í um 20km fjarlægð vestur frá Heimaey. Það er í útsuður frá Þrídröngum milli Þrídranga og Geirfuglaskers. Það er 32 metrar á hæð og ekki er talið að drangurinn hafi verið klifinn hingað til, enda er það talið ómögulegt. Í lögun og stærð er […]
Annar leikmaður frá Uganda til ÍBV

Nýr leikmaður hefur bæst í leikmannahóp ÍBV, Úgandamaðurinn Agustine Nsumba (Gústi), mætti á klakann á fimmtudaginn síðasta eftir langt ferðalag. Hann kemur frá sama liði og Andy spilaði með, Sportsclub Villa, en Andy var einmitt fyrirliði þess liðs og léku þeir félagar saman þar. Augustine er lítill og lipur strákur sem spilar sem sóknarþenkjandi miðjumaður. […]
200 þúsund króna virði

Umferðarmerkjum og keilum var stolið úr Breiðumörk í Hveragerði aðfaranótt laugardags. Lögregla segir að verðmæti merkjanna sé um 200 þúsund krónur, en telur líklegt að þjófnaðurinn sé af ótuktarskap frekar en hagnaðarvon. (meira…)
Brotist inn á Menam
Aðfaranótt laugardags var brotist inn á veitingastaðinn Menam á Selfossi og þaðan stolið drykkjarvörum. Hluti þýfisins fannst skammt frá og í framhaldi af því komust lögreglumenn á spor nokkurra unglinga sem frömdu innbrotið. (meira…)
Seðlaumslagi stolið

Umslag með átta tíu þúsund krónum í reiðufé var stolið úr dökkgrænni Toyota Land Cruiser bifreið fyrir utan Dynskóga 24 í Hveragerði aðfaranótt síðastliðins föstudags. Ummerki bentu til að hurð á bifreiðinni hefði verið spennt upp með kúbeini og hlaust af því talsvert tjón, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. (meira…)
Skólaverkefni endaði í bókaútgáfu

Selfyssingurinn Ingibjörg Birgisdóttir, tónmenntarkennari í Flóaskóla, hefur gefið út barnabókina Skýjamyndir. Bókin inniheldur fjölbreytt barnaljóð eftir Ingibjörgu og er ríkulega myndskreytt. (meira…)
Sævar með fjögur í 9-1 sigri

Það var heldur betur létt yfir Selfossliðinu þegar þeir tóku á móti Sindra í 2. deild karla í knattspyrnu í dag. Selfyssingar unnu stórsigur, 9-1. Sævar Þór Gíslason fór á kostum og skoraði fjögur mörk, þar af tvö af vítapunktinum. (meira…)
Sanngjarn sigur ÍBV á �?órsurum

Strákarnir gerðu frábæra ferð norður yfir heiðar í dag en þeir voru nú rétt í þessu að leggja Þórsara að velli, 0-2. Mörk Eyjamanna skoruðu Stefán Björn Hauksson og Pétur Runólfsson. Varnarleikur Eyjamanna var sterkur en Þórsarar sköpuðu sér ekkert í leiknum, ef undan er skilinn einn lélegur skalli þeirra í byrjun leiks. Nýr leikmaður […]