Verður minnst á sunnudaginn

Á sunnudaginn, 22. júlí nk. eru liðin 100 ár frá fæðingu Jóns Vigfússonar frá Holti. Jón lést árið 1999. Eins og þeir vita sem þekkja til sögu Vestmannaeyja vann Jón mjög frækilegt björgunarafrek árið 1928 er hann bjargaði skipsfélögum sínum með því að klífa Ofanleitishamar í kulda og snjókomu. (meira…)
Talið að reynt verði að slá skjaldborg um sjóðinn
Svo virðist sem átök séu í uppsiglingu um eignarhald á Sparisjóði Vestmannaeyja. Boðnar hafa verið 5 miljónir króna fyrir hvern hlut sem er um 100-falt nafnvirði, segir í Fréttum RÚV í hádeginu og vitnað í frétt Vaktarinnar frá í gær. Þar er sagt að fjársterkir aðilar séu að reyna að kaupa bréf stofnfjáreigenda í Sparisjóði […]
Stilla framlengir samkeppnistilboð um fjórar vikur.
Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að ákvörðun um framlengingu tilboðsfrestsins sé tekin með tilliti til niðurstöðu samanburðarmats Saga Capital fjárfestingarbanka hf. á, annars vegar, yfirtökutilboði Eyjamanna ehf. og, hins vegar, samkeppnistilboði Stillu eignarhaldsfélags ehf. sem stjórn Vinnslustöðvarinnar kynnti með tilkynningu til kauphallar þann 13. júlí síðast liðinn. (meira…)
Kviknaði í út frá þurrkara í Vestmannaeyjum
Eldur kviknaði á sjötta tímanum í kvöld út frá þurrkara í bílskúr í Vestmannaeyjum. Íbúar urðu eldsins fljótt varir og höfðu ráðið niðurlögum hans þegar slökkvilið kom á staðinn. (meira…)
�?Efling Sparisjóðsins er efling einstaklingsins í Vestmannaeyjum til mannsæmandi lífs.

Barátta Sparisjóðsins fyrir bættum kjörum Eyjabúa er um leið eins konar sjálfstæðisbarátta þeirra, losar þá undan fjárhagslegu áhrifavaldi annars staðar frá. Þar er þeirra eigið fé, þeirra eigið afl, til þeirra hluta sem gera skal og nauðsyn krefst, að framkvæmdir verði, ef Eyjabúum skal farnast vel.“ (Sparisjóður Vestmannaeyja 50 ára. bls. 8) (meira…)
Fýluferð hjá slökkviliðinu

Tilkynnt var um eld í heimahúsi á Selfossi um klukkan níu í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út en heimilisfangið sem gefið var upp reyndist ekki vera til og bendir allt til þess að um gabb hafi verið að ræða, samkvæmt upplýsingum frá Selfosslögreglu. (meira…)
Grenstangamótið á laugardag

Hið árlega Grenstangamót verður haldið nk. laugardag, 21.júlí, að Grenstanga í A-Landeyjum. Keppt verður í tölti í eftirtöldum flokkum: Börn, unglingar, ungmenni. kvennaflokkur og karlaflokkur og oldboys and girls. (meira…)
Veðurguðirnir á Draugabarnum á morgun!

Hljómsveitin Veðurguðirnir halda stórdansleik á Draugabarnum á morgun, föstudag. Farnar eru sætaferðir frá bókasafninu á Selfossi klukkan 23:30 og til baka klukkan 03:30. Aðgangseyrir er 1500 krónur. (meira…)
Opið hús í dag vegna 20 ára afmælis

Opið hús á starfsafmæli í tilefni 20 ára starfsafmælis Dag- og skammtímavistunar Búhamri 17 verður opið hús fimmtudaginn 19. júlí milli kl. 14:00 og 16:00. Allir þeir sem hafa áhuga á að kynna sér starf okkar og taka þátt í afmælinu með okkur eru velkomnir. (meira…)
Barn keyrði á konu með barnavagn

Vestmannaeyjar: Ungur drengur, 4-5 ára, sem var einn í bíl, setti hann í gír með þeim afleiðingum að bíllinn lenti á konu með barnavagn. Atvikið átti sér stað í Vestmannaeyjum í gær. Frá þessu er sagt á mbl.is og kemur fram að bíllinn með drengnum í rann dágóðan spöl, hátt í 200 metra, að sögn […]
Manni bjargað úr sjálfheldu
Björgunarsveitin Víkverji var kölluð út síðdegis í dag til að sækja mann sem var í sjálfheldu í klettum í Þakgili í Höfðabrekkuafrétt. Hafði maðurinn klifrað upp til að aðstoða börn sín niður úr þessum sömu klettum en þegar hann ætlaði sjálfur niður hrundi aðeins undan fótum hans svo hann taldi vissara að kalla á aðstoð. […]
Halda á upp á 60 ára afmæli Selfoss

Hópur fólks á Selfossi hefur myndað nefnd til þess að halda upp á 60 ára afmæli byggðar á Selfossi, en 1. janúar 1947 var Selfosshreppur hinn forni stofnaður. Ákveðið hefur verið að efna til mikillar hátíðar í haust eina helgina, þar sem 60 ár eru frá stofnun byggðar við Ölfusá. (meira…)
Mikill fjöldi gesta heimsótti Bryggjuhátíðina á Stokkseyri

Bryggjuhátíðinni á Stokkseyri lauk formlega á sunnudaginn var. Hún fór fram 12.-15. júlí í blíðskaparveðri alla dagana. Mikill fjöldi gesta heimsótti hátíðina. Þar gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi. (meira…)
Gangaskýrslan innan fárra daga

Á síðasta fundi bæjarráðs gerði bæjarstjóri grein fyrir samtölum sem hann hefur átt við starfsmenn VST sem nú vinna að óháðri úttekt á forsendum jarðganga milli lands og Eyja. Von er á niðurstöðu hvað það varðar innan fárra daga. (meira…)
Áhersla á þrjár ferðir í flugi
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu útboðs á flugi milli lands og Eyja. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni barst einungis tilboð frá Flugfélagi Íslands í þessa mikilvægu þjónustu. (meira…)
Komu fyrir búnaði í Faxaskeri

Á föstudaginn fóru Eykyndilskonur út í Faxasker ásamt félögum úr Björgunarfélagi Vestmannaeyja til þess að koma nýjum búnaði í björgunarskýlið sem þar er. Má þar nefna ullarfatnað, teppi, vatn og matvæli sem öllu er sérstaklega pakkað í lofttæmdar umbúðir, skyndihjálparbúnað, prímus, neyðarblys og allt sem þarf að vera til staðar í neyðarskýli. (meira…)
Fjölnir fékk hámarkssekt

Aganefnd KSÍ hefur úrskurðar vegna framkomu nokkurra stuðningsmanna Fjölnis í leik félagsins gegn ÍBV á dögunum en eins og fjallað hefur verið um, var jafnvel um kynþáttafordóma að ræða en aganefndin fjallaði ekki sérstaklega um það. Aganefndin beinir þeim tilmælum jafnframt til Fjölnis að koma í veg fyrir að framkoman verði endurtekin. Úrskurð aganefndar, sem […]
Bryggjudagur handboltans á laugardaginn

Hinn árlegi bryggjudagur handknattleiksdeildar ÍBV verður haldin næstkomandi laugardag 21. júlí n.k. klukkan 13:00. Að vanda er stórgóð dagskrá í boði og veðurspáin lofar góðu. Handknattleiksdeildin hvetur Vestmannaeyinga og gesti þeirra til að fjölmenna á bryggjuna. Þar verður hægt að kaupa sér fisk á frábæru verði, ýmislegt verður einnig til gamans gert. Götuleikhúsið verður á […]
Bára Friðriksdóttir orðin prestur í Tjarnaprestakalli

Valnefnd í Tjarnaprestakalli, Kjalarnesprófastsdæmi, ákvað á fundi sínum þann 6. júlí síðastliðinn að leggja til að sr. Bára Friðriksdóttir verði ráðin sóknarprestur í Tjarnaprestakalli. Níu umsækjendur voru um embættið. Embættið veitist frá 1. september 2007. Dóms – og kirkjumálaráðherra skipar í embættið til fimm ára að fenginni niðurstöðu valnefndar. (meira…)
Fyrirtækjamótið og Hjóna- og parakeppnin um helgina

Um helgina lauk Meistaramóti GV og var þátttakan góð en að lokum stóð Gunnar Geir Gústafsson uppi sem sigurvegari í meistaraflokki. Og það er nóg framundan hjá Golfklúbbnum því um helgina verða tvö mót. Á föstudaginn verður Hjóna- og parakeppnin og daginn eftir, Fyrirtækjakeppni GV. (meira…)